Útisundlaug við Sundhöllina

Jón Gnarr í Sundhöll Reykjavíkur
Jón Gnarr í Sundhöll Reykjavíkur mbl.is/Eggert Jóhannesson

Borgarráð ákvað á fundi sínum í morgun að kanna leiðir til að byggja útilaug fyrir almenning og aðstöðu fyrir heilsutengda ferðaþjónustu á auðri lóð við hlið Sundhallarinnar í Reykjavík.

Hugmyndin er ekki ný en auð lóð er við hlið Sundhallarinnar og hefur verið sýnt fram á að hægt er að koma fyrir útilaug og annarri starfsemi þar þannig að vel fari. Þessar hugmyndir verða nú kannaðar frekar ásamt hugsanlegum leiðum til að vinna verkefnið í samstarfi við fyrirtæki í heilsutengdri ferðaþjónustu þannig að kostnaði yrði deilt. Útilaugin yrði tengd núverandi Sundhöll og opin almenningi, samkvæmt upplýsingum frá Degi B. Eggertssyni, borgarfulltrúa.

Sundhöllin sjálf er friðuð að ytra og innra byrði og ekki er gert ráð fyrri breytingu þar á.

Einróma samþykkt borgarráðs:

„Óskað er eftir heimild borgarráðs til að setja af stað undirbúningsvinnu í sameiginlegum starfshópi framkvæmda- og eignasviðs, skipulags- og byggingasviðs, menningar- og ferðamálasviðs, ÍTR og innkaupaskrifstofu vegna endurbóta og hugmynda um stækkun Sundhallarinnar.

Undirbúningsvinna felst m.a. í forsögn að gerð deiliskipulags, greiningu hagsmunaaðila, frekari skilgreiningu verkefnisins, markmiðssetningu og tillögu um útboðsaðferð og rekstrarform."

Segir í greinargerð með tillögunni að ráðast þurfi í endurbætur og lagfæringar á Sundhöllinni í Reykjavík innan ekki langs tíma. „Vaknað hafa hugmyndir um að samhliða þeim framkvæmdum yrði ráðist í byggingu útisundlaugar og komið upp heilsutengdri starfsemi við Sundhöllina sem höfðað gæti til íbúa sem og ferðamanna. Nýframkvæmdir þessar, endurbætur á eldra húsi og mögulega rekstur væru boðnar út sem samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og einkaaðila.”

Sundhöllin í Reykjavík var hönnuð af Guðjóni Samúelssyni.
Sundhöllin í Reykjavík var hönnuð af Guðjóni Samúelssyni. mbl.is/Golli
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert