Níu brennur í Reykjavík

Áramótabrenna
Áramótabrenna mbl.is/Brynjar Gauti

Byrjað verður að taka á móti efni í áramótabrennurnar í Reykjavík í fyrramálið en þær verða á sömu stöðum og í fyrra. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar.

„Best er að fá hreint timbur á brennurnar“, segir Þorgrímur Hallgrímsson brennukóngur og rekstrarstjóri á hverfastöð Framkvæmda- og eignasviðs á vef Reykjavíkurborgar. „Plast, gúmmí og unnið timbur á ekki erindi á köstinn.“  

Starfsmenn hverfastöðvanna verða á vettvangi og leiðbeina þeim sem koma með efni. Hætt verður að taka á móti efni þegar brennurnar eru orðnar hæfilega stórar eða í síðasta lagi kl. 12:00 á gamlársdag.

„Stærstur hluti þess sem fer á brennurnar eru vörubretti en einnig fáum við afganginn af jólatréssölunni,“ segir Þorgrímur. „Það er liðin tíð að fólk komi með drasl úr geymslum enda er það margt sem ekki má fara á brennurnar“.

Stærð brennanna ræðst af mati Eldvarnareftirlitsins á aðstæðum á hverjum stað. Brennurnar eru á sömu stöðum og í fyrra og rétt eins og þá eru stóru brennurnar fjórar og þær minni fimm talsins.  

1)        Við Ægisíðu, stór brenna.
2)        Skerjafjörður gegnt Skildinganesi 48–52,  lítil brenna.
3)        Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð, lítil brenna.
4)        Vestan Laugarásvegar móts við Valbjarnarvöll, lítil brenna.
5)        Geirsnef, borgarbrenna, stór brenna.
6)        Við Suðurfell, lítil brenna.
7)        Fylkisbrennan, við Rauðavatn, stór brenna.
8)        Gufunes við gömlu öskuhaugana, stór brenna.
9)        Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna.



Kveikt verður í áramótabrennum í Reykjavík kl. 20:30 að kvöldi gamlársdags. Borgarbúar eru hvattir til að fjölmenna á brennur og hafa gjarnan með sér stjörnuljós en skilja skotelda eftir heima.

Sjá kort með brennum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert