Látinn víkja vegna ESB

Jón Bjarnason mætir á fund VG stækka

Jón Bjarnason mætir á fund VG mbl.is/Ómar Óskarsson

Jón Bjarnason, sem er að láta af embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir að krafan um úrsögn hans úr ríkisstjórn sé tilkomin vegna afstöðu hans til Evrópusambandsins. Hann gagnrýnir Steingrím  J. Sigfússon í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér.

Harmar þessi málalok fyrir VG

„Krafa um úrsögn mína úr ríkisstjórn sem nú hefur náð fram að ganga er eins og ítrekað hefur komið fram, komin til vegna afstöðu minnar til aðildar Íslands að Evrópusambandinu.

Ég stend persónulega sáttur upp frá borði eftir árangursríkan ráðherraferil. En um leið harma ég þessi málalok fyrir minn flokk, kjósendur VG og einnig þann málstað sem hefur verið hornsteinn í okkar stefnu. Það er mér mikið áhyggjuefni hvernig formaður VG heldur hér á málum gagnvart samstarfsflokki sínum án þess að hlusta á lýðræðislegar stofnanir og grasrót Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs.

Ég tel að með þeirri niðurstöðu sem nú liggur fyrir sé enn og aftur höggvið stórt skarð í þann trúverðugleika sem VG hefur haft sem stjórnmálahreyfing. Okkur sem stöndum vaktina fyrir hugsjónir VG bíður mikið og erfitt verkefni endurreisnar. Þar mun ég ekki liggja á liði mínu og ég heiti á mitt stuðningsfólk að vinna að málefnum okkar og þeirri vinstristefnu sem hreyfing okkar hefur staðið fyrir allt frá stofnun. Á því þarf Vinstrihreyfingin grænt framboð og sá málstaður sem hún var stofnuð um nú meira að halda en nokkru sinni.

Einn af hornsteinum í stefnu VG er krafan um fullveldi Íslands og þar með afdráttarlaus andstaða við aðild að ESB. Við myndun meirihlutastjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur vorið 2009 var um það samið milli flokkanna að virða skyldi ólíkar áherslur í þessu deilumáli. Atburðarásin sem síðan hefur átt sér stað sýnir okkur að þar fylgdi ekki hugur máli hjá þeim sem ötulast berjast fyrir aðild að ESB. Nú er svo komið að þrír af þingmönnum VG hafa gengið út og mér sem ráðherra er vikið úr embætti fyrir að vilja gæta vel að hagsmunum Íslands í þessum málum.

Undir minni forystu hefur mikil vinna farið fram innan sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis við aðildarumsókn að ESB í samræmi við fyrirmæli Alþingis. Þess hefur jafnframt verið gætt að í engu sé farið út fyrir það umboð sem Alþingi veitti ríkisstjórninni með þingsályktunartillögu sinni þann 16. júlí 2009. Slík varfærni og ábyrgð er afar mikilvæg þegar um er að ræða meðferð íslenskra hagsmuna í milliríkjasamningum. Án efa mun brotthvarf mitt úr ríkisstjórn gleðja marga þá sem ákafast berjast fyrir skilyrðislausri aðild Íslands að ESB og telja sértæka hagsmuni Íslands litlu skipta.

Um leið og ég óska ráðherrum velfarnaðar í störfum sínum og þakka samráðherrum mínum samstarfið vil ég senda stuðningsfólki og landsmönnum öllum bestu óskir um gleðilegt ár og farsælt komandi ár," segir í yfirlýsingu Jóns.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Kirkjugestir voru teknir til altaris.

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og eiginmaður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem er að vera sameiningarafl. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Konan fannst látin

19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

17:46 Bíll skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Alsírsku drengirnir áfrýja

16:25 Alsírsku drengirnir sem sakfelldir voru í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komu til Íslands hafa áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Héraðsdómur dæmdi þá til 30 daga fangelsisvistar þann 30. apríl síðastliðinn. Meira »

Stöðvaður eftir ofsaakstur

17:23 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í dag ofsaakstur fólksbíls sem ók á miklum hraða eftir Miklubraut. Hann ók m.a. utan í bíl. Ökumaður grunaður um ölvun og vímuefnaneyslu. Meira »

Listflug við Reykjavíkurflugvöll

Á sýningunni var hægt að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum.
15:54 Fjöldi fólks hefur í dag fylgst með flugvélum sýna listflug á Reykjavíkurflugvelli, en Flugmálafélags Íslands stóð fyrir flugsýningu þar sem hægt var að skoða flugvélar af öllum stærðum og gerðum. Meira »

Ákærður fyrir að stinga mann

Guðgeir Guðmundsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir árásina.
14:26 Ákæra gegn Guðgeiri Guðmundssyni, sem sakaður er að hafa 5. mars. sl. stungið tvo starfsmenn lögmannsstofnunnar Lagastoða, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Annar mannanna særðist lífshættulega og lá í marga daga á gjörgæsludeild. Meira »

Klára kvótamálin í vikunni

Atvinnuveganefnd stefnir að því að klára umfjöllun um frumvarp um veiðigjald í vikunni.
14:05 Boðaður hefur verið fundur í atvinnuveganefnd Alþingis á morgun til að ræða um kvótafrumvörpin. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaformaður nefndarinnar, segir að frumvörpin verði ekki afgreidd úr nefndinni á morgun, en það verði gert síðar í vikunni. Meira »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »

Landsbjörg leitar enn að Ligitu

Ligitu Solomenceva
14:22 Landsbjörg leitar í dag að hinni 42 ára Ligitu Solomenceva frá Lettlandi. En til hennar hefur ekkert spurst síðan 13 maí. Hún var í sumarbústað við Meðalfellsvatn og var ein á ferð. Meira »

Hreint hjarta besta myndin

Grímur Hákonarson.
13:34 Heimildamynd Gríms Hákonarsonar Hreint hjarta var valinn besta heimildamyndin á Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda sem haldin var í sjötta sinn á Patreksfirði um helgina. Meira »

Veðurblíða víða um land

Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.
11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bókhaldsstofan ehf, Reykjavíkurv.60 Hfj.
Bókhald, launaútreikn., vsk-uppgjör, stofnun á félögum, ársreikningar, skattfram...
Til sölu Volvo V70, árgerð 2006, ek. 83þ
Til sölu Volvo V70, árgerð 2006,ekinn 83 þús km .Innfluttur nýr frá Brimborg. Ál...
Mitsubishi Pajero árg. 1992 til sölu.
Til sölu góður Mitsubishi Pajero árg. 1992. Bensín. Ekinn 270.000. Lítur vel út...
Toyota Corolla1,4 VVTi,8/2003
Til sölu Toyota Corolla 1,4 VVTi, 8/2003. Ek. 100 þús., bensín, nýskoðaður, ný ...
 
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...