Innbrot í sumarbústað

Séð yfir Grímsnesið.
Séð yfir Grímsnesið. www.mats.is

Lögreglunni á Selfossi var í fyrradag tilkynnt um innbrot og þjófnað í sumarbústað við Sogsbakka sem stendur á milli Ljósafossvirkjunar og Steingrímsstöðvar í Grímsnes- og Grafningshreppi. Var stolið Philips-flatskjá, fartölvum og öðrum munum.

Að sögn lögreglunnar fóru þjófarnir um bústaðinn og ollu þar nokkru tjóni á innanstokksmunum. Ógreinileg skóför voru í snjónum við húsið en fennt í þau svo líkur eru til að einhverjir dagar hafi verið liðnir frá innbrotinu þar til það uppgötvaðist. Er talið að innbrotið hafi verið framið á tímabilinu 18. desember síðastliðinn til 2. janúar.   

Lögreglan á Selfossi biður þá sem veitt geta upplýsingar um innbrotið að hafa samband í síma 480 1010.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert