Tryggvi Þór tekur til varna

Tryggvi Þór Herbertsson
Tryggvi Þór Herbertsson Kristinn Ingvarsson

„Nú er það svo að það eru alltaf einhverjir sem spá því að hallæri og kreppur séu á næsta leiti og að nú séu síðustu forvöð til að gera hitt eða þetta til að afstýra voða... En við Mishkin erum ekki í þessum hópi — við erum greinendur, en ekki spámenn,“ skrifar Tryggvi Þór Herbertsson í varnargrein vegna umfjöllunar um skýrslu sem hann var meðhöfundur að.

En Tryggvi Þór, sem er dr. í hagfræði og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar langa grein á vef Evrópuvaktarinnar í tilefni af grein Styrmis Gunnarssonar, fv. ritstjóra Morgunblaðsins, á vefinn í gær. Komst Styrmir þar meðal annars svo að orði að skýrsla Tryggva Þórs og Frederic Mishkin, prófessors við Columbia-háskóla, um íslenska bankakerfið árið 2006 hefði verið „dýrt spaug“ hjá kaupandanum, Viðskiptaráði Íslands.

Hefur mbl.is þegar fjallað um grein Styrmis.

Skrifuð að beiðni Viðskiptaráðs Íslands

Svargrein Tryggva Þórs er svohljóðandi:

„Í mars 2006 sendum við prófessor Frederic Mishkin við Columbia-háskóla, sem nokkrum mánuðum síðar varð einn af seðlabankastjórum Bandaríkjanna, frá okkur skýrslu um fjármálalegan stöðuleika á Íslandi. Skýrslan var gerð að beiðni Viðskiptaráðs sem greiddi kostnað og laun við gerð hennar. Skýrslan hefur af mörgum verið talin hafa valdið straumhvörfum vorið 2006 og leitt til þess að ekki var tekið á fjármálakerfinu íslenska á þann hátt sem þurfti. Sumir segja að skýrslan hafi verið uppskriftin að hruninu, en það er nú sennilega sagt í pólitískum tilgangi. Í Óskarverðlaunamyndinni Inside job er skýrslan meira að segja notuð sem dæmi um samsull viðskipta og háskóla í þeirri tilraun að fletta ofan af samsæri kapítalistanna, sem sagt er vera stjórnað frá Wall Street!

Meginniðurstöður okkar Mishkins voru þær að hverfandi líkur væru á fjármálakreppu á Íslandi og var mat okkar byggt á opinberum hagtölum, greiningum alþjóðastofnana á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS), Efnahags- og framfarastofnunin (OECD), Sameinuðu þjóðirnar og Transparency International og þekktum hagfræðikenningum um orsakir fjármálakreppa. Einnig byggðum við álit okkar á greiningum Fjármálaeftirlitsins (FME) og Seðlabanka Íslands. Við sögðum að lítil sem engin merki fyndust um þá þætti sem leitt hefðu til fjármálakreppa annars staðar í heiminum á undanförnum áratugum og að við teldum því litlar líkur á fjármálakreppu á Íslandi.“

Litið um öxl

Tryggvi Þór viðurkennir að hlutar skýrslunnar hafi ekki elst vel í ljósi þeirra atburða sem síðar urðu.

„Nokkrar staðhæfingar í skýrslunni standast illa tímans tönn í ljósi þeirra atburða sem áttu sér stað um 30 mánuðum síðar. Þannig er t.a.m. um þá staðhæfingu okkar Mishkins að stofnanaumgjörð sé með besta móti á Íslandi og spilling nær engin. Það lítur ekki vel út í ljósi atburðanna í október 2008.

Óhætt er að segja að við höfum haft rangt fyrir okkur varðandi þessa þætti skýrslunnar. Þau mistök skýrast af því að við, eins og aðrir, misreiknuðum kerfið — fjármálahrunið leiddi síðar veikleika þess í ljós. Jafnframt ber að hafa í huga að þegar við skrifuðum skýrsluna var stærð fjármálakerfisins á Íslandi um 40% af því sem það var við hrunið.

Efnistök okkar hefðu vafalítið verið önnur ef kerfið hefði verið jafn stórt og síðar átti eftir að verða.“

Röktu hættuna ítarlega

Hann segir skýrsluhöfunda hafa vikið að hættunni sem myndi skapast ef lausafjárskortur yrði í íslenska bankakerfinu.

„Einn af þeim þáttum sem við fjölluðum ítarlega um var sú hætta sem steðjaði að íslenska fjármálakerfinu ef kæmi til lausafjárskorts. Við röktum ítarlega hvernig þessi hætta gæti orðið bönkunum skeinuhætt. Jafnframt töldum við litla hættu á lánsfjárskorti miðað við útlitið á alþjóðamörkuðum — en að við sæjum fyrir þann vanda, sem alþjóðlega fjármálakerfið lenti í um tveimur árum síðar, er af og frá. Vorið 2006 vorum við reyndar ekki þeir einu sem mistókst að skynja teikn um alþjóðlega fjármálakreppu sem ná myndi hámarki í kjölfar gjaldþrots eins stærsta fjárfestingabanka heims í september 2008.“

Greinendur, ekki spámenn

Tryggvi þór víkur að áhættusækni fjármálafólks og ályktar að bankamenn hafi tekið alltof mikla áhættu á uppgangstímanum.

„Nú er það svo að það eru alltaf einhverjir sem spá því að hallæri og kreppur séu á næsta leiti og að nú séu síðustu forvöð til að gera hitt eða þetta til að afstýra voða. Að lokum hafa þeir rétt fyrir sér — bilað úr sýnir réttan tíma tvisvar á sólarhring. En við Mishkin erum ekki í þessum hópi — við erum greinendur (e. analysts), en ekki spámenn (e. forecasters). Við munum því ekki hljóta refsingu spámanna í víti Dantes, þar sem höfðum spákerlinga er snúið á búknum svo að þær geti aldrei framar horft fram á við.

Sameiginlegur skilningur virðist nú hafa myndast hjá þeim, sem besta yfirsýn hafa, að fjármálakreppan sem hófst sumarið 2007 eigi fyrst og fremst rætur sínar í ónógu eftirliti með fjármálamörkuðum. Bankamenn hafi nær óheft tekið allt of mikla áhættu í leit sinni að gróða. Slíkt leiddi að lokum til þess að kerfisáhætta var orðin svo mikil að fall varð óumflýjanlegt ef til lausafjárskorts kæmi. Þá hættu lögðum við Mishkin mikla áherslu á í skýrslu okkar. Skiptir þar engu hvort um er að ræða Bandaríkin eða Ísland, Grikkland eða Írland, Bretland eða Spán — eftirlit var ónógt. Lee Buckheit fjallaði á sannfærandi hátt um þennan skilning í erindi í Háskólanum í Reykjavík vorið 2011.“

Eftirlitið var ekki bætt

Tryggvi Þór segir ekki hafa verið farið eftir tillögum þeirra.

„Ekki hefur mikið verið fjallað um að í skýrslu okkar Mishkins eru settar fram ráðleggingar til stjórnvalda og bankanna sem miðuðu að eftirfarandi: að bæta eftirlit með fjármálastofnunum (m.a. með sameiningu FME og Seðlabankans), auka upplýsingagjöf og gagnsæi bankanna, afnema krosseignatengsl og bæta hagstjórn — allt í þeim tilgangi að auka fjármálalegan stöðugleika í landinu. Eftir tillögum okkar var ekki farið — því miður. Hrunið á Íslandi á rætur sínar í þeim þáttum sem við bentum á að ætti að bæta, eins og rannsóknarnefnd Alþingis hefur tíundað og Lee Buckheit benti á.“

Yfir 50 ára reynsla

Tryggvi Þór víkur að reynslu tvímenninganna.

„Samanlagt höfum við Mishkin um 50 ára reynslu af hagfræðilegri ráðgjöf gegn endurgjaldi. Við höfum ráðlagt fjölda seðlabanka, ríkisstjórna, alþjóðastofnana og einkafyrirtækja um allan heim. Skýrslan fyrir Viðskiptaráð er í engu frábrugðin því sem við og fjölmargir háskólamenn höfum skrifað bæði fyrir og eftir hrun. Því miður sáum við ekki fyrir fjármálahrunið og því eru einhverjar staðhæfingar okkar rangar. En við því er ekkert annað að gera en að læra og gera betur næst. Skaðinn hér á Íslandi hefði þó orðið mun minni ef farið hefði verið að ráðum okkar um að bæta eftirlit með fjármálamörkuðum líkt og við lögðum til vorið 2006. Þessu er rétt að halda til haga.“

Grein Tryggva Þórs má nálgast hér

*Tekið skal fram að millifyrirsagnir eru blaðsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert