Staðinn að utanvegaakstri

Skógafoss í klakaböndum.
Skógafoss í klakaböndum. Ragnar Axelsson

Ferðaþjónustuaðili á mikið breyttri hópbifreið með fimm erlenda ferðamenn var í síðustu viku staðinn að utanvegaakstri í og við Skógaá.

Lögreglan á Hvolsvelli segir, að ökumaðurinn hafi lent í vandræðum við að aka upp úr ánni en hjólbarði á bíl hans affelgaðist og þurfti bílstjórinnn því að leita sér aðstoðar.

Ökumaðurinn hefur verið kærður fyrir athæfið og má búast við sekt í framhaldi þess, að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert