„Þjóðin valdi okkur“
Blár Ópal í Hörpu í gær. Hljómsveitina skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finnbogason, Agnar Birgir Gunnarsson og Kristmundur Axel Kristmundsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson
„Þjóðin valdi okkur, það er mjög gaman að vita af öllum þessum stuðningi almennings,“ sagði Franz Ploder Ottósson, einn fjórmenninganna í Bláum ópal, þegar mbl.is hringdi í hann rétt eftir að fréttir bárust um að lagið þeirra, Stattu upp, hefði fengið flest atkvæði í símakosningunni í Söngvakeppni Sjónvarpsins í gær.
„Þetta kemur í raun alls ekkert á óvart, við höfum fengið brjálaðan stuðning, þannig að ég bjóst alveg eins við þessu,“ segir Franz.
- En ertu ekkert svekktur að komast ekki út í aðalkeppnina?
„Jú, þetta er auðvitað svolítið svekkjandi en ekkert hægt að vera pirraður út af því. Þetta hefur verið svakalega góð og mikil reynsla fyrir okkur.“
Blár ópal fór beint úr keppninni í Hörpu í gær og spilaði á balli Páls Óskars á Selfossi. „Það var mikið stuð og mjög gaman,“ segir Franz, sáttur en þreyttur eftir átök helgarinnar.
Lagið Stattu upp er eftir Ingólf Þórarinsson, Ingó veðurguð, og Axel Árnason.
Hljómsveitina Bláan ópal skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finnbogason, Agnar Birgir Gunnarsson og Kristmundur Axel Kristmundsson.
700 fleiri atkvæði
Lagið Stattu upp í flutningi strákasveitarinnar Blás ópals fékk flest atkvæði í símakosningu Söngvakeppni Sjónvarpsins í gærkvöldi. Lagið fékk 700 fleiri atkvæði en lagið sem vann, Mundu eftir mér í flutningi Gretu Salóme og Jónsa í Svörtum fötum. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.
Skýringin á þessu felst í því að atkvæði almennings giltu til jafns við atkvæði sjö manna dómnefndar. Lagið Stattu upp varð í þriðja sæti dómnefndarinnar en lagið Mundu eftir mér í því fyrsta. Því fór sem fór.
Tæplega 80 þúsund atkvæði voru greidd í símakosningu keppninnar í gær.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 12. febrúar 2012, Innlent „Ég hef sjaldan verið jafnglaður“
- Sunnudagur, 12. febrúar 2012, Innlent Blár ópal fékk flest atkvæði
- Fimmtudagur, 20. janúar 2011, Innlent Lést af völdum heilablóðfalls
- Mánudagur, 21. maí 2012, Innlent Atkvæði dómara í kvöld
- Laugardagur, 18. febrúar 2012, Innlent Sjálf lafhrædd við sviðsljósið
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































