Sex bílar skemmdust í árekstri

Bílarnir sem skemmdust á Akureyri í dag. Jeppinn sem er …
Bílarnir sem skemmdust á Akureyri í dag. Jeppinn sem er lengst til hægri á myndinni slapp. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Sex bílar eru skemmdir eftir óhapp á Akureyri í dag. Óhappið varð með þeim hætti að ökumaður sem var á leið í jarðarför í Akureyrarkirkju sneri við efst í Kaupvangsstræti og hugðist leggja aftan við röð bíla, en náði ekki að stoppa í mikilli hálku. Bíllinn rann á þann næsta og þannig koll af kolli.

Nokkrir bílanna virtust við fyrstu sýn töluvert skemmdir en tjón liggur ekki fyrir á þessari stundu. Eigendur bílanna, nema þess aftasta, vissu ekki af óhappinu fyrr en þeir komu úr kirkunni eftir jarðarförina.

mbl.is/Skapti
mbl.is/Skapti
mbl.is/Skapti
mbl.is/Skapti
mbl.is/Skapti
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert