Ekki gott að flytja inn iðnaðarsorp

Sorp.
Sorp. mbl.is/Frikki

Það er ekki gott veganesti með nýsamþykktri framtíðarsýn Reykjanesbæjar að selja eina af grunnstoðum sveitarfélagsins til erlendra aðila í því skyni að flytja inn iðnaðarsorp til brennslu, segir í bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í dag. 

Í bókun fulltrúanna segir að á Suðurnesjum sé einn helsti vaxtarbroddur ferðaþjónustunnar á Íslandi og sveitarfélögin öll hafi stefnt að því að markaðssetja svæðið fyrir innlenda og erlenda aðila. Óhætt sé að fullyrða að það verði ekki ferðaþjónustunni til framdráttar að stækka brennslustöðina og brenna í henni innflutt iðnaðarsorp frá Bandaríkjunum.

„Ekki verður séð af þeim samningsdrögum sem liggja fyrir að í þeim sé falin framtíðarlausn á sorpeyðingu bæjarins né heldur að kostnaður bæjarins minnki. Allar fullyrðingar í þá veru eru óraunhæfar, segir í bókuninni. „Við teljum heldur ekki forsvaranlegt að bæjaryfirvöld Reykjanesbæjar hafi frumkvæði að því að afsala fyrirtækinu sem býður í hlutinn þá umhverfisábyrgð sem rekstri sorpeyðingarstöðvar fylgir.“

Þá sé ljóst að viðsnúningur hafi orðið á rekstri Kölku og núverandi stjórn félagsins telji möguleika á að gera fyrirtækið rekstrarhæft þannig að reksturinn standi undir sér og undið verði ofan af þeim fortíðarvanda sem háð hefur stöðinni.

 „Samfylkingin í Reykjanesbæ telur því fyrirhugaða sölu á Kölku hvorki farsæla lausn né ódýrari til lengri tíma litið og það eigi að vera metnaðarfullt markmið hverrar sveitarstjórnar að tryggja til langrar framtíðar ábyrga stefnu hvað varðar sorphirðumál síns sveitarfélags.“

Segjast fulltrúarnir hafna öllum hugmyndum um sölu á sorpeyðingarstöðinni Kölku til erlendra aðila grundvölluðum á innflutningi á iðnaðarsorpi til brennslu á Suðurnesjum.

 „Verði það niðurstaða meirihluta bæjarstjórnar að halda áfram á vegferð þessari leggjum við höfuðáherslu á að endanleg ákvörðun verði ekki tekin af bæjarstjórn nema í nánu samstarfi við eigendur hlutarins í Kölku, sem eru íbúar Reykjanesbæjar,“ segir í bókuninni. „Það verður best gert með því að halda borgarafund um málið og efna til íbúakosningar í kjölfarið. Ljóst er að ákvörðunin mun hafa mikil áhrif á framtíðarímynd bæjarins og lífskilyrði bæjarbúa og því ber bæjarstjórn Reykjanesbæjar að afgreiða málið í fullri vissu um vilja bæjarbúa.  Þannig er lýðræðinu best þjónað.“

Undir bókunina skrifa Friðjón Einarsson, Guðný Kristjánsdóttir og Eysteinn Eyjólfsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert