Mikil fjölgun ferðamanna

Ferðamenn leita sér skjóls
Ferðamenn leita sér skjóls mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tæplega 28 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í nýliðnum febrúarmánuði eða fimm þúsund fleiri en í febrúar 2011.

Aukning ferðamanna á milli ára í febrúar nú er því 22,1%. Ferðamenn eru nú ríflega helmingi fleiri en árið 2003 og á því níu ára tímabili sem Ferðamálastofa hefur haldið úti talningum í Leifsstöð hefur aukningin milli ára í febrúarmánuði verið að jafnaði 9,4%

Bretar fjölmennastir

Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í febrúar frá Bretlandi eða 37,7% af heildarfjölda. Næstfjölmennastir voru Bandaríkjamenn eða 13,9% af heildarfjölda, síðan komu Norðmenn (7,0%), Danir (5,5%), Frakkar (4,8%), Þjóðverjar (3,9%), Japanir (3,9%),  Svíar (3,7%) og Hollendingar (3,7%). Samtals eru þessar níu þjóðir 84,1% af heildarfjölda ferðamanna í febrúar.

Ef litið er til einstakra markaðssvæða má sjá verulega aukningu frá Bretlandi milli ára eða um tæp 50%. Aukning frá N-Ameríku er ennfremur umtalsverð eða 28,4% og sama má segja um lönd sem flokkuð eru undir „annað“ eða 20,0%. Norðurlandabúar standa hins vegar í stað og lítilsháttar fækkun er frá Mið- og S-Evrópu.

Aðeins fleiri Íslendingar fara til útlanda
Frá áramótum hafa 54 þúsund erlendir ferðamenn farið frá landinu sem er tæplega 20 prósenta aukning frá árinu áður. Um 51% aukning hefur verið í brottförum Breta, tæplega þriðjungsaukning (29,7%) í brottförum N-Ameríkana og tæplega fjórðungsaukning í brottförum frá löndum sem flokkast undir „annað“.  Brottförum Norðurlandabúa og þeirra sem koma frá Mið- og S-Evrópu hefur hins vegar fækkað lítils háttar.

Aðeins fleiri Íslendingar eða tæplega 1.700 talsins fóru utan í febrúar í ár en í fyrra. Í ár fóru 21.242 Íslendingar utan en 19 þúsund árið áður. Aukningin nemur 8,3% á milli ára. Frá áramótum hafa tæplega 45 þúsund Íslendingar farið utan, 2.250 fleiri en á sama tímabili árið 2011 þegar um 42 þúsund Íslendingar fóru utan. Aukningin nemur 5,3% milli ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert