Slæmt siðferði rót vandans

Rannveig Rist, forstjóri álversins í Straumsvík á Iðnþingi í dag
Rannveig Rist, forstjóri álversins í Straumsvík á Iðnþingi í dag Ljósmynd/Samtök iðnaðarins

Rót vandans er slæmt siðferði, eiginhagsmunasemi, óheiðarleiki og virðingarleysi. Þetta sagði Rannveig Rist á Iðnþingi í dag og sagði of mikið einblínt á efnahags- og fjármál á Íslandi en ekki tekist á við hina raunverulegu rót vandans.

Sagði hún að Íslendingar þyrftu að taka sig saman í andlitinu hvað þetta varðar. Þá sagði hún ekki búandi við það til lengdar hversu lítið traust helstu stofnanir samfélagsins hafa hjá almenningi.

Rannveig sagði frá 60 milljarða fjárfestingarverkefni í Straumsvík sem fengið hefði fremur litla athygli, og sagði ástæðuna sennilega þá að ekki væri ágreiningur um verkefnið, en ágreiningi og deilum væri hampað of mikið í umræðunni. Loks benti hún á að tillaga iðnaðar- og umhverfisráðherra um flokkun virkjanakosta fæli í sér verndun á yfir helmingi virkjanakosta.

Aftur á móti væri þar boðað grænt ljós á undirbúning umtalsverðrar orkuöflunar, eða sem nemur um 13 teravattstundum. Sú orka myndi duga fjórum Straumsvíkurálverum og að auki til 20-földunar ylræktar. Þarna væru því forsendur fyrir mjög mikilli verðmætasköpun. Sagðist hún vona að nýtingarflokkur yrði ekki minnkaður um fjórðung, eins og nefnt hefði verið í fréttum, enda stæði þá aðeins eftir að leyft væri að byggja eina nýja vatnsaflsvirkjun á Íslandi, Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði. Taldi hún ótrúlegt að það yrði sú sáttatillaga sem áralöng vinna við rammaáætlun átti að skila.

Loks sagðist Rannveig sannfærð um að iðnfyrirtæki landsins yrðu í fararbroddi nýrrar sóknar á Íslandi.

Frá iðnþingi í dag
Frá iðnþingi í dag mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert