Víkurprjón selt til Garðabæjar

Húsnæði Víkurpróns á Vík í Mýrdal.
Húsnæði Víkurpróns á Vík í Mýrdal. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson

Víkurprjón í Vík í Mýrdal var selt í dag, en um er að ræða stærsta atvinnurekanda í sveitarfélaginu. Kaupandi er eignarhaldsfélagið Drífa sem hefur aðsetur í Garðabæ. Fráfarandi framkvæmdastjóri óttast þó ekki að starfsemin verði flutt úr bænum.

Drífa ehf. er eitt elsta ullarfyrirtæki á Íslandi og var stofnað á Hvammstanga árið 1972. Í upphafi sérhæfði fyrirtækið sig í að framleiða jakka og peysur úr íslenskri ull, en það hefur þróast mikið á undanförnum árum og gengur í dag oftar undir nafninu Icewear.

Þórir N. Kjartansson, fráfarandi framkvæmdastjóri Víkurprjóns, segir að gengið hafi verið frá kaupunum í dag en kaupverðið verði ekki gefið upp. Hann telur að litlar breytingar verði á starfsemi Víkurprjóns að öðru leyti en því að hann láti af störfum.

Hann óttast ekki að starsemin hverfi úr bænum þó svo að fyrirtæki af höfuðborgarsvæðinu hafi keypt reksturinn, og bendir meðal annars á að við verksmiðjuna sé einnig starfrækt ferðamannaverslun sem gangi mjög vel. Í versluninni eru seldar vörur sem framleiddar eru í verksmiðjunni.

Þórir stofnaði Víkurprjón fyrir 32 árum. Í samtali við Viðskiptablaðið í vikunni sagði fyrirtækið hafi hagnast um tæpar 14,4 milljónir króna árið 2010 samanborið við 24,3 milljónir árið 2009. Tekjur hafi aukist jafnt og þétt eftir hrun, þar af á bilinu 10-20% á milli ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert