Sveitarstjóri Þingeyjarsveitar lætur af störfum

Tryggvi Harðarson
Tryggvi Harðarson mbl.is

Tryggvi Harðarson sveitarstjóri Þingeyjarsveitar hefur hætt störfum. Á fundi sveitarstjórnar í dag óskaði hann eftir lausn frá störfum af persónulegum ástæðum.

Í tilkynningu frá sveitarstjórninni segir að beiðni Tryggva hafi verið samþykkt og honum þakkað samstarfið undanfarin fjögur ár. Sveitarstjórnin óskar honum velfarnaðar til framtíðar.  

Dagbjört Jónsdóttir skrifstofustjóri og staðgengill sveitarstjóra mun taka nú þegar við störfum sveitarstjóra Þingeyjarsveitar. Jafnframt felur sveitarstjórn oddvita og varaoddvita að ganga til samninga við Dagbjörtu um að hún taki að sér starf sveitarstjóra út kjörtímabilið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert