Húshumlur snemma á ferð

Húshumla.
Húshumla. mbl.is/Sigurgeir

Til þessa hefur mátt stilla dagatalið eftir húshumlunum á 19. apríl. Þær hafa hins vegar brugðist því viðmiði þetta vorið, að því er fram kemur í frétt frá Náttúrufræðistofnun.

Drottningar tóku að skríða úr vetrarhýði í lok mars og töluvert varð við þær vart fyrstu dagana í apríl. Rauðhumlan nýja hefur einnig látið á sér kræla og kann það að vera vísbending um að hún verði meira áberandi í ár en áður.

Það er alvanalegt að einstaka humludrottningþjófstarti á vorin og fari að kanna aðstæður fyrr en aðrar. Ef farið er of snemma á stjá er ekki tryggt að nokkra næringu sé að finna. Er þá vísast að skríða aftur í skjól og bíða betri tíma með blóm í haga. Það væsir þó ekki um þær árrisulu að þessu sinni því selja og viðja eru þegar farnar að blómstra en fyrstu næringuna fá humlur einmitt úr víðireklum sem gefa af sér bæði frjókorn og blómasafa. Hins vegar má reikna með að húshumludrottningum fjölgi ekki til muna fyrr en á tilsettum tíma um 20. apríl.

Vefur Náttúrufræðistofnunar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert