Staða sjávarútvegs og landbúnaðar veikt

Jón Bjarnason á Alþingi.
Jón Bjarnason á Alþingi. Mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jón Bjarnason þingmaður Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs lýsti í kvöld yfir andstöðu sinni við þingsályktunartillögu  ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórnarráði Íslands. Þar með hafa tveir fyrrum ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafnað tillögunni, því Árni Páll Árnason gagnrýndi hana einnig harðlega í dag.

Sviðin jörð frjálshyggjunnar

Jón beindi sjónum einkum að því að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti yrðu lögð niður og sameinuð atvinnumálaráðuneyti. Hann benti á að þegar breytingar voru síðast gerðar á ráðuneytum, árið 2010, hefðu sambærileg áform verið felld út úr upphaflegum tillögum. „Þannig að það má segja að vilji Alþingis hafi komið fram hvað það varðar á þeim tíma," sagði Jón.

Hann rifjaði einnig upp ályktun flokkráðsfunds VG á Akureyri árið 2010 þar sem fundurinn skoraði á þingflokk VG að endurskoða endurskipulagningu stjórnarráðsins, með þeim orðum að sjávarútvegur og landbúnaður myndu, sem grunnatvinnuvegir þjóðarinnar, skipta verulegu máli við endurmótun íslensk atvinnulífs eftir „sviðna jörð frjálshyggjunnar og græðgisvæðingu síðustu ára".

Samningsstaðan gagnvart ESB veikt

„Eitt af því sem þarna var haft sem rökstuðningur var að þá hafði Alþingi sent umsókn um inngöngu að ESB og það lá alveg fyrir að þær atvinnugreinar sem myndi mæða harðast á í því umsóknarferli yrðu einmitt sjávarútvegur og landbúnaður," sagði Jón. „Það er nú svo að þær kröfur sem ESB gerir í aðlögunarferli sínu eru einmitt breytingar á sjávarútvegi og landbúnaði og það er líka staðreynd að flestar greinar sjávarútvegs og landbúnaðar hafa lýst sig mjög andvígar þessu aðildarferli."

Þess vegna sagðist jón telja það bæði varhugavert og óviturlegt að veikja stjórnsýslulega stöðu sjávarútvegs og landbúnaðar með því að leggja niður ráðuneyti þeirra. Það yrði til þess fallið að veikja samningsstöðu Íslands gagnvart ESB. „Staðan gæti svo sem orðið önnur ef þeirri vegferð verður hætt og umsóknin afturkölluð," bætti Jón við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert