Gullfoss skartar sínu fegursta

Gullfoss skartaði sínu fegursta þegar Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra komu þangað nú áðan. Um sex stiga hiti er í Biskupstungum og mjög bjart veður.

Wen mun ferðast um Suðurland í dag ásamt forsætisráðherra en meðal annars ætluðu þau að heilsa upp á heimilisfólk á Kjóastöðum í Biskupstungum.

Á annað hundrað manns eru í fylgdarliði Wen og mikil öryggisgæsla í kringum forsætisráðherrann. Ekkert hefur sést til mótmælenda á ferðalagi Wen í dag en fyrr í morgun skoðaði hann Þingvelli og síðar í dag mun hann meðal annars skoða Geysi og Kerið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert