Samþykktu kínverskan forgang

Kínverski forsætisráðherrann Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir við komu kínverska ráðherrans á Keflavíkurflugvelli síðastliðinn föstudag. stækka

Kínverski forsætisráðherrann Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir við komu kínverska ráðherrans á Keflavíkurflugvelli síðastliðinn föstudag. mbl.is/Kristinn

mbl.is Ingvar P. Guðbjörnsson - ipg@mbl.is

Tveggja daga opinberri heimsókn Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, lauk formlega í gær, en hann fór af landi brott í dag.

Það vakti athygli margra íslenskra fjölmiðlamanna, sem fylgdu forsætisráðherranum og fylgdarliði hans eftir, að fjórir kínverskir fjölmiðlamenn fengu forgang umfram aðra, íslenska sem og aðra vestræna fjölmiðlamenn. Þeir fengu að vera í hóp ásamt honum og öðrum háttsettum embættismönnum. Fengu að fara inn á svæði sem öðrum fjölmiðlamönnum var meinaður aðgangur að. Þeir flugu einnig ásamt fjölda annarra fjölmiðlamanna með forsætisráðherranum hingað til lands og notuðu jafnvel sama útgang úr flugvélinni og forsætisráðherrann.

Wen Jiabao forsætisráðherra Kína ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands á Bessastöðum.

Wen Jiabao forsætisráðherra Kína ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands á Bessastöðum. Eggert Jóhannesson

Það bar við í ferðum forsætisráðherrans að þessir fjórir kínversku forgangsblaðamenn, sem voru merktir sem slíkir, skyggðu á þegar aðrir ljósmyndarar voru að reyna að mynda það sem fram fór og við komu Wen til landsins afhenti ung stúlka honum blómvönd sem íslenskum ljósmyndurum gekk illa að ná á mynd vegna þess hve aðgangsharðir hinir kínversku forgangsblaðamenn voru. Heimildir blaðamanns herma að oft hafi beinlínis borið á talsverðri tilætlunarsemi, jafnvel frekju, af hálfu hinna kínversku forgangsblaðamanna.

Samkomulag gert á milli stjórnvalda um aðgengi forgangsblaðamanna

Jóhann Hauksson, upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, staðfesti í samtali við blaðamann mbl.is að það hefði verið gert samkomulag um að tveir kvikmyndatökumenn og tveir ljósmyndarar frá Kína fengju forgang í ferðinni. Hið sama átti við um einn íslenskan ljósmyndara. Þetta var gert að kröfu Kínverja.

Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, ásamt fylgdarliði á Þingvöllum.

Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, ásamt fylgdarliði á Þingvöllum. mbl.is/Ómar Óskarsson

Jóhann segir vissulega óheppilegt það sem gerðist á flugvellinum þegar forsætisráðherranum voru afhent blóm og hinir kínversku blaðamenn torvelduðu þeim íslensku störf sín. Hann segir að jafnvel þótt íslensk stjórnvöld hafi látið það afskiptalaust að þessir tilteknu blaðamenn frá Kína fengju forgang hafi það aldrei verið í myndinni að þeir tefðu fyrir störfum íslenskra fréttamanna, ef til vill hafi íslensku blaðamennirnir verið of kurteisir gagnvart þeim kínversku.

Aðgengi að íslenskum ráðherrum mun betra en að þeim kínversku

Í heimsókn Wen í Hellisheiðarvirkjun var eftir því tekið hversu gott aðgengi fjölmiðlamenn höfðu að Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra, sem ræddi við þá aðila sem óskuðu eftir því. Það var hinsvegar ákaflega erfitt fyrir blaðamenn að fá viðtöl við þá kínversku ráðherra sem fylgdu forsætisráðherranum og þurfti að fara mjög formlegar leiðir til þess að óska eftir slíku. Blaðamanni er ekki kunnugt um að neinn kínverskur ráðherra hafi veitt íslenskum blaðamanni viðtal í ferðinni.

„Á Bessastöðum er enginn mannamunur gerður.“

Það var einnig eftir því tekið á Bessastöðum að þar virtust þessi forgangsákvæði ekki hafa átt við og íslenskir blaðamenn fengu að mynda og vera viðstaddir til jafns við þá kínversku þegar forsætisráðherrann heimsótti forseta Íslands.

„Það er okkar regla að tryggja það að íslenskir fjölmiðlamenn hafi jafnan aðgang á við hina erlendu gesti. Á Bessastöðum voru allir fjölmiðlamenn í sömu stöðu og jafnir, eins og vera ber,“ sagði Örnólfur Thorsson, forsetaritari, í samtali við blaðamann, spurður um málið og bætti við: „Á Bessastöðum er enginn mannamunur gerður.“

Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, við Gullfoss

Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, við Gullfoss mbl.is/Ómar Óskarsson

Össur Skarphéðinsson tók á móti Wen Jiabao við Hellisheiðarvirkjun í gær.

Össur Skarphéðinsson tók á móti Wen Jiabao við Hellisheiðarvirkjun í gær. mbl.is/Ómar Óskarsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Lýst eftir Birgittu Sif

Birgitta Sif er 14 ára gömul.
06:12 Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Birgittu Sif Gunnarsdóttur til heimilis að Sunnubraut 13, Reykjanesbæ. Síðast er vitað um ferðir Birgittu Sifjar, sem er 14 ára gömul, um kl. 21:30 í gærkvöldi og er talið að hún sé í Reykjanesbæ. Meira »

Leifur Örn kominn á toppinn

Leifur Örn Svavarsson
05:50 Leifur Örn Svavarsson náði á topp Everest um sólarupprás og gekk ferðalagið vel. Mikið rok er á toppnum, samkvæmt upplýsingum frá Elínu Sigurveigu Sigurðardóttur framkvæmdastjóra Íslenskra fjallaleiðsögumanna en í höfuðstöðvum fyrirtækisins fylgdist fólk með ferðalagi Leifs í gærkvöldi og nótt. Meira »

Kæstur hákarl á skrá hjá Slow Food

Matarlegt er um að litast í þurrkhjallinum hjá Guðrúnu Pálsdóttur og Einari Guðbjartssyni á Flateyri.
05:30 Kæstur hákarl, sjávarsalt af Reykjanesi og vestfirskur hjallaþurrkaður harðfiskur.  Meira »

Breyttum tóni er víða fagnað

Hagfræðingar telja að hagvöxtur muni örvast með nýrri ríkisstjórn.
05:30 Aðilar vinnumarkaðarins telja stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks sýna vilja til víðtæks samráðs. Leiðtogar stjórnarandstöðuflokkanna segja ýmsar spurningar vakna við lestur sáttmálans og þeir hagfræðingar, sem spurðir voru álits, telja að hagvöxtur muni örvast. Meira »

Mat verður lagt á stöðu ríkissjóðs

Þau verða ráðherrar í dag, (f.v.) Ragnheiður Elín Árnadóttir verðandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Bjarnir Benediktsson ...
05:30 Fyrsta verk nýs fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarna Benediktssonar, verður að leggja mat á stöðu ríkissjóðs í ljósi nýjustu upplýsinga um þróun efnahagsmála. Þetta sagði formaður Sjálfstæðisflokksins og verðandi ráðherra í Valhöll í gær, eftir að hann tilkynnti skipan ráðherra flokksins. Meira »

Ekki gerst áður á lýðveldistímanum

Í gær, 23:41 „Þetta verður eina ríkisstjórnin á lýðveldistímanum þar sem enginn hefur áður gegnt ráðherraembætti,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur, í samtali við mbl.is og vísar þar til nýrrar ríkisstjórnar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins sem tekur formlega við völdum á morgun. Meira »

Almennt orðað og skortir útfærslur

Sumarþing gæti hafist fljótlega, nú þegar ný ríkisstjórn hefur verið mynduð.
05:30 Fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna á nýju þingi komu saman til fundar í gær þar sem rætt var um nefndaskipan og þingstörf framundan. Kom m.a. til tals hvort flokkar í minnihlutanum mundu fá formennsku í nefndum þegar þingið kæmi saman. Meira »

Síðustu metrarnir eftir á Everest

Leifur Örn Svavarsson á Everest.
00:01 „Veðrið er ekkert sérstakt hjá þeim en ef allt gengur vel þá eigum við von á að þau toppi einhvern tímann á milli miðnættis og fjögur í nótt að íslenskum tíma. Við eigum von því á milli eitt og tvö ef allt fer að óskum,“ segir Elín Sigurveig Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Íslenskra fjallaleiðsögumanna. Meira »

Húsbíll fauk í Hamarsfirði

Í gær, 23:29 Engin slys urðu á fólki þegar húsbíll fauk út af veginum við Rauðuskriður, austan megin í Hamarsfirði um þrjú leytið í dag. Mikill vindur var á þessum slóðum og var ökumönnum húsbíla ráðlagt að bíða veðrið af sér, uns því slotaði um kvöldmatarleytið. Meira »

„Hvað vakir fyrir Ólafi Ragnari?“

Björn Bjarnason.
Í gær, 22:42 „Hvað vakir fyrir Ólafi Ragnari með þessu?“ spyr Björn Bjarnason, fv. ráðherra, í tilefni af þeim ummælum forsetans að hann hafi valið Sigmund Davíð Gunnlaugsson til að mynda stjórn vegna stefnu formannsins í skuldamálum heimilanna. Meira »

40 útköll vegna sama vegarkaflans

Húsbíll var meðal þeirra bíla sem festust á Dettifossvegi í dag.
Í gær, 22:36 „Frá áramótum höfum við fengið meira en 40 útköll á þennan veg,“ segir Gísli Rafn Jónsson, björgunarsveitarmaður í Mývatnssveit, sem hefur farið í tugi útkalla vegna vanbúinna bíla sem hafa fest á Dettifossvegi. Hann segir að loka þyrfti veginum, treysti Vegagerðin sér ekki til að halda honum opnum. Meira »

Enginn áður gegnt ráðherraembætti

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, verðandi forsætisráðherra.
Í gær, 22:09 „Við erum öll að koma inn í ráðuneyti í fyrsta skipti og þannig að byrja á ákveðnum núllpunkti hvað varðar aðgang að upplýsingum og starfsmönnum ráðuneytanna,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, verðandi forsætisráðherra. Meira »

Engar yfirlýsingar um ESB-atkvæði

Frá fundi þingflokks Framsóknarflokksins í kvöld.
Í gær, 21:48 „Það er mikil vinna framundan við að sjá til þess að það hlé sem sett var verði virt. Síðan þarf að endurmeta stöðuna og kalla eftir upplýsingum. Það væri óábyrgt af mér að fara lýsa yfir einhverjum dagsetningum um hvenær atkvæðagreiðslan verður,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra. Meira »

Gunnar Bragi utanríkisráðherra

Frá fundinum í kvöld.
Í gær, 21:00 Þingflokkur Framsóknarflokksins samþykkti á fundi sínum í kvöld tillögu formanns flokksins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssyni, um það hverjir verði ráðherrar í nýrri ríkisstjórn flokksins og Sjálfstæðisflokks. Meira »

Fundur þingmanna Framsóknar hafinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður flokksins, í Alþingishúsinu í kvöld.
Í gær, 20:49 Þingflokkur Framsóknarflokksins situr nú á fundi í Alþingishúsinu en að honum loknum verður tilkynnt hvaða þingmenn flokksins muni sitja í ríkisstjórn fyrir hans hönd. Meira »

„Í raun stærsta efnahagsmál þessarar þjóðar“ myndskeið

Myndskeið frá íþróttadeild
Í gær, 21:29 „Ég er afskaplega stoltur og ánægður með þetta. Þetta er ráðuneyti sem ég hef mikinn áhuga á, menntamálin. Ég lít svo á að menntamálin séu í raun stærsta efnahagsmál þessarar þjóðar,“ sagði Illugi Gunnarsson, verðandi menntamálaráðherra, eftir að tilkynnt var að hann yrði ráðherra í næstu ríkisstjórn. Meira »

„Spennandi tímar framundan“ myndskeið

Myndskeið frá íþróttadeild
Í gær, 21:00 „Það eru spennandi tímar framundan og mikilvægt verkefni,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, verðandi innanríkisráðherra, eftir að tilkynnt var ráðherraskipan Sjálfstæðisflokks. Hún segist afar stolt yfir því að fara að takast á við þessa stóru málaflokka sem eru innan ráðuneytisins. Meira »

Hanna Birna innanríkisráðherra myndskeið

Myndskeið frá íþróttadeild
Í gær, 20:30 Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, verður innanríkisráðherra í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Eins og áður hefur komið fram verður Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, fjármála- og efnahagsráðherra. Meira »
Glæsileg borðstofuhúsgögn og skenkur úr CASA
Vel með farin borðstofuhúsgögn og skenkur úr CASA. Frekari upplýsingar í síma 89...
NÝSTÚDENTAR
Nýstúdentar sem klára stúdentspróf fyrir lok ágúst og eldri stúdentar Jessenius ...
nudd nudd nuss
Relaxing whole body massage in downtown anytime!!!!8416795 Anastasia...
BÓKHALD
Bókhald, launavinnsla, stofnun fyrirtækja og framtöl fyrir einstakl...
 
Tónlistarkennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður tónlistarkennara Tónlis...
Fjáröflunarsamkoma - kristniboðssamandið
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Fjáröflunarsamkoma ...
Uppboð - sýslumaðurinn í reykjavík

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Leikskólakennari / sérkennslustjóri
Leikskólakennsla
Leikskólinn Örk á Hvolsvelli auglýsir ...