Eftirlætisgæs Blönduósinga komin til landsins

Grágæsin ber einkennisstafina SLN.
Grágæsin ber einkennisstafina SLN. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson

Grágæsin SLN er enn og aftur mætt á Blönduós eftir vetrardvöl í Skotlandi. Hún var merkt sumarið 2000, þá orðin fullorðin, og má því áætla að hún hafi flogið minnst 26 sinnum yfir hafið.

Frá þessu segir á bloggsíðu Jóns Sigurðssonar, fréttaritara Morgunblaðsins á Blönduósi. Þar segist hann hafa verið orðinn vonlítill um að þessi eftirlætisgæs Blönduósinga skilaði sér í ár því nokkuð sé liðið síðan fyrstu gæsir komu. „Hugsið ykkur, gæsin hefur flogið 26 sinnum yfir hafið og heim og mátt sæta skotárásum bæði á Íslands- og Skotlandsstöndum. Þessi gæs hefur sýnt einstakan hæfileika til að komast af og ef við gerum ráð fyrir því að hún hafi komið upp 5 ungum að meðaltali öll þessi ár þá hafa fylgt henni öll þessi sumur 65 ungar. Þessi eðalgæs hefur haft það fyrir vana að helga sér svæði í nágrenni Héraðshælisins og hafa því eldri borgarar bæjarins haft að henni þokkalegt aðgengi og ég veit að þeir eru flestir elskir að henni.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert