Kanínu drekkt í poka í Ölfusá

Kanína fannst dauð í poka við Ölfusá.
Kanína fannst dauð í poka við Ölfusá. Af vefnum DFS

Íbúa á Selfossi sem var að viðra sig og hundinn sinn í dag meðfram Ölfusá í Hellisskógi við Selfoss var heldur brugðið þegar hann í einhverri rælni kíkti ofan í poka á árbakkanum við ánna. Við honum blasti dauð kanína, líklega nýdauð.  

Kanínan hefur sennilega verið sett í pokann, bundið fyrir og honum síðan hent í ánna í þeim tilgangi að drepa dýrið, segir í frétt DFS.

Pokinn hefur svo rekið að árbakkanum. Íbúinn var í hálfgerðu sjokki þegar hann tilkynnti blaðamanni DFS um atburðinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert