Þátttakan valdið kaflaskiptum í rannsóknum

Umfang rannsókna á Íslandi er umtalsvert meira vegna þátttöku í …
Umfang rannsókna á Íslandi er umtalsvert meira vegna þátttöku í rannsóknaáætlununum. Myndin er úr safni. mbl.is/Sigurgeir

Þátttaka Íslands í 6. og 7. rammaáætlun Evrópusambandsins um rannsóknir og þróun árin 2003 til 2011, hefur valdið kaflaskiptum í rannsóknum og þróun á Íslandi. Þetta er niðurstaða hóps sem menntamálaráðuneytið fékk í fyrra til að geta úttekt á þátttökunni.

Fram kemur í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu, að það sé einróma álit einstaklinga innan háskólasamfélagsins, stjórnsýslunnar og atvinnulífsins, að þátttakan hafi leitt til stóraukins alþjóðlegs samstarfs, opnað íslenskum vísindamönnum aðgang að þekkingu og aðstöðu, sem ekki hafi verið fyrir hendi hér á landi, og skilað sér í auknum gæðum rannsókna, nýsköpun hjá fyrirtækjum og bættri samkeppnishæfni.

„Áhrifanna gætir einna mest á þeim sviðum þar sem Ísland er sterkt og hefur mikil áhrif á þann árangur, sem íslenskt vísindafólk hefur náð á alþjóðlegum vettvangi, sem má m.a. sjá í fjölda birtinga í samstarfi við alþjóðlega vísindahópa. Fyrirtækin sem taka þátt hafa ávinning af rannsóknasamstarfi við mótun framtíðarþróunar og bæta samkeppnisstöðu sína,“ segir í tilkynningunni. 

Þá kemur fram að umfang rannsókna á Íslandi sé umtalsvert meira vegna þátttöku í rannsóknaáætlununum. Á tímabilinu frá 2003 til fyrsta ársfjórðungs 2012 sé búið að semja um styrki að fjárhæð sem er tæplega 3,5 milljörðum kr.  hærri en greitt hafi verið fyrir þátttöku í áætluninni á sama tíma.

Eitt rannsóknasvið skeri sig úr hvað styrkupphæðir varði. Af öllum styrkjum til Íslands séu styrkir úr undiráætlunum um erfðafræði og heilbrigðisvísindi í 6. og 7. rannsóknaáætlun  um þriðjungur, samtals 3,4 milljarðar króna.

Þátttakan í upplýsingatækni og í áætlunum fyrir efnistækni og örvísindi séu öllu slakari. Margar umsóknir í upplýsingatækni hafi skilað fáum og lágum styrkjum en hins vegar sé  lítil sókn í efnis- og örvísindum, þó að markáætlun á því sviði hafi verið sett á laggirnar fyrir nokkrum árum.

„Eitt fyrirtæki sker sig úr um árangur. Íslensk erfðagreining ehf. hefur fengið 80% allra styrkja til fyrirtækja úr 7. rannsóknaáætlun og 40% allra styrkja til Íslands úr áætluninni, eða um 2,6 milljarða kr. Fyrirtæki fá 44% allra styrkja úr 7. rannsóknaáætlun, sem er mjög hátt hlutfall í samanburði við önnur lönd, en að baki eru þó fá fyrirtæki og því ástæða til að hafa áhyggjur af þátttöku fyrirtækja í rannsóknaáætlununum og lítilli nýliðun meðal umsækjenda,“ segir í tilkynningunni.

Fleiri verði að taka virkari þátt


Þá bendir úttektarhópurinn á að þótt Rannís beri meginþungann af stuðningi við rannsóknaáætlanirnar þá sé það mat hópsins að  Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins verði ásamt öðrum hagsmunaaðilum að taka virkari þátt í stuðningi við minni fyrirtæki. Umsækjendur og styrkþegar séu almennt ánægðir með stuðning og þjónustu Rannís. Stuðningurinn einskorðast hins vegar fyrst og fremst við upplýsingagjöf, kynningar og námskeið og stofnunin hefur ekki bolmagn til að veita meiri þjónustu. Að mati úttektarhópsins  sé full þörf á að efla stuðning við ritun umsókna, rekstur verkefna og eftirfylgni þeirra og það á frekar við um einstaklinga og smáfyrirtæki en stærstu háskólana, burðugar stofnanir og öflug fyrirtæki. Að sama skapi telji hópurinn mikilvægt að efla starfsemi ráðuneytisins í Brussel og kringum landstengiliði og stjórnarnefndarfulltrúa til að tryggja betur íslenska hagsmuni og upplýsingagjöf til hagsmunaaðila.

Úttektarhópurinn gerir fjölmargar tillögur til ráðherra um aðgerðir til að efla stefnumótun á sviði rannsókna og stuðning við umsækjendur. Mennta- og menningarmálaráðuneytið mun vinna úr þeim ábendingum og gera um þær verkáætlun.

Lokaskýrsla matshóps mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert