Fékk heilablóðfall í flugvél

mbl.is/Hjörtur

Tilkynning barst til lögreglunnar á Suðurnesjum skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt um að flugvél væri að koma inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli með farþega sem væri meðvitundarlaus eftir heilablóðfall.

Var sjúkrabifreið kölluð út og reyndist um að ræða tæplega sextugan karlmann  sem var á leið með vélinni frá Austurríki til Riga í Lettlandi.

Læknir og sjúkralið hlúðu að honum og var hann fluttur á Landspítalann í Fossvogi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert