Ruddust inn á lögfræðiskrifstofu

Tveir menn ruddust inn á lögfræðiskrifstofu í miðbæ Reykjavíkur um kl. 14:30 í dag. Þeir réðust að starfsmanni og ógnuðu honum. Hann slasaðist hins vegar ekki.

Mennirnir brutu og brömluðu innanstokksmuni á stofunni.  Á meðan á þessu stóð höfðu þeir í hótunum við starfsmanninn en voru farnir af staðnum þegar lögreglan kom.  Meiðsl urðu ekki á fólki í atgangi þessum.  Vitað er hverjir þarna voru á ferð, en þeir munu hafa áður átt samskipti við lögfræðistofuna. Málið er í rannsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert