Slys á Bíladögum

Mynd sem tekin var af slysinu.
Mynd sem tekin var af slysinu. Ljósmynd/Baldvin Sigurðsson

Slys varð á Bíladögum á Akureyri í kvöld þegar keppt var í svokallaðri drift keppni. Þar missti keppandi stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún skall á girðingu sem aðskilur keppnissvæði frá áhorfendum. Tveir eru meiddir eftir atvikið.

Einn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Ekki er vitað um meiðsl hans að svo stöddu. Óljóst er hvort hinn aðilinn hafi einnig farið á sjúkrahús en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri er sá minna slasaður. 

Frekari upplýsingar eru ekki veittar um slysið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert