Stjórnin ber ábyrgð á stöðunni

Jón Bjarnason
Jón Bjarnason Sigurður Bogi Sævarsson

„Vandi ríkisstjórnarinnar er því að einhverju leyti heimatilbúinn með því að leggja svo mikla áherslu á umdeild mál sem mikil andstaða er við,“ segir Jón Bjarnason, þingmaður VG, um þá miklu tímaþröng sem ríkisstjórnarflokkarnir eru komnir í á þingi.

„Ég tel að mál eins og stjórnarráðsbreytingarnar, að leggja niður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, hafi ekki verið forgangsmál. Ríkisstjórnin hefur lagt gríðarlega áherslu á aðlögunarstyrki að ESB og svo má nefna Vaðlaheiðargöng og þá ákvörðun að taka þau úr samgönguáætlun. Vandi ríkisstjórnarinnar er því að einhverju leyti heimatilbúinn með því að leggja svo mikla áherslu á umdeild mál sem mikil andstaða er við.“

Betra að afgreiða kvótafrumvörpin saman

Samningar um þinglok strönduðu  meðal annars á veiðigjöldum og lýsir Jón, forveri Steingríms J. Sigfússonar, formanns VG, í embætti sjávarútvegsráðherra, yfir andstöðu við fyrirætlanir um að afgreiða veiðigjaldafrumvarpið á þessu þingi en láta afgreiðslu frumvarps um stjórn fiskveiða bíða næsta þings, líkt og heimildir fréttavefjar Morgunblaðsins bentu til að væri ætlunin fyrr í kvöld.

„Mitt mat er að hluti veiðigjalda á að renna til viðkomandi sjávarbyggða og að þau eigi að vera hluti af heildarumgjörð fiskveiðistjórnunar en ekki sér lög," segir Jón sem kveðst því viljað hafa sjá fiskveiðistjórn og veiðigjöld í einu frumvarpi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert