Hópslagsmál og erill á Akureyri
Nokkur erill var hjá lögreglunni á Akureyri í gærkvöldi og nótt. Margir voru úti að skemmta sér og þurftu lögreglumenn aðallega að sinna verkefnum tengdum skemmtanalífinu.
Mikill fjöldi fólks er nú saman kominn í bænum vegna Bíladaga og freistuðust nokkrir ökumenn til þess að sýna listir sínar á götum bæjarins. Þurfti lögregla því að hafa afskipti af aksturslagi sumra ökumanna en aðallega voru menn að spóla í hringi með tilheyrandi hávaða.
Tveir ökumenn voru þó teknir fyrir of hraðan akstur innanbæjar. Sá sem hraðast ók var á mótorhjóli og mældist hann á 93 km/klst en hámarkshraði var 50 km/klst. Á hann yfir höfði sér háa fjársekt vegna brotsins.
Þá fékk lögregla tilkynningu um að þrír menn hefðu rutt sér leið inn á heimili í bænum og lamið húsráðanda. Árásin tengist að sögn lögreglu einhverjum deilum á milli aðila og slapp húsráðandi með minniháttar meiðsl.
Eftir að skemmtistöðum bæjarins var lokað seint í nótt fékk lögregla tilkynningu um hópslagsmál í miðbænum en mikill mannfjöldi var þar saman kominn. Alls voru sex fluttir á slysadeild, fimm af lögreglu eftir slagsmál og einn með sjúkrabíl eftir líkamsárás.
Tveir ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Annar þeirra hafði þegar endað ökuferð sína illa en hann keyrði á staur í miðbænum og svo utan í aðra bifreið.
Þá voru einnig tveir handteknir til viðbótar í tengslum við skemmdarverk en þeir höfðu sparkað í og skemmt bifreið sem stóð á bílastæði í miðbænum.
Innlent »
Föstudagur, 24.5.2013
- Íbúar norðursins spennandi jaðarverur
- Leigja flugvél undir flóttafólk
- Sparkaði í andlit liggjandi manns
- Fundu 80 grömm af amfetamíni
- Ísland með forustu á NM í brids
- Milli steins og sleggju
- Krefst viðurkenningar á faðerni Jóels
- „Guð birtist mér þegar ég var 2 ára“
- Sex ekki komnir með aðstoðarmenn
- Gott að vinna hjá sérstökum saksóknara
- Skipa ráðherranefnd um úrlausnir
- Talið að kafarinn nái sér
- Köfunarslys í Silfru
- Franski ferðamaðurinn fundinn
- Útblástur barst inn í hjólhýsið
- 600 taka þátt í landsþingi Slysavarnafélagsins
- „Búið að umturna öllu“
- Eftirlit við Leifsstöð gengur vel
- Þyrlan tekur þátt í leitinni
- Börnin söfnuðu yfir 8 milljónum króna
- Sjö komust áfram í Íslandsmótinu í kotru
- Kynhneigð skiptir ekki máli í skátunum á Íslandi
- Sjö skólar sameinast um fjarnám
- Fjölgun í Landnámsdýragarinum
- Vélarvana báti komið til aðstoðar
- Fyrsti ríkisstjórnarfundurinn
- 2½ tíma seinkun vélar Icelandair
- Leit á Fimmvörðuhálsi
- Jafnréttismál á réttri leið en þó má bæta um betur
- Brennuvargs leitað
- Þorgerður Katrín til SA
- Friðun Fríkirkjuvegar á byrjunarreit
- Missti bifreiðina út í Norðurá
- Góður gangur í karfaveiðum
- Heimilt að bera fólkið út
- Ganga gegn Monsanto á Austurvelli
- Lifrarbólgufaraldur rakinn til frosinna jarðarberja
- Sviptur eftir ölvunarakstur
- Rukkuð um aukalyklana
- Ríkisstjórnarfundur klukkan 13
- Gengu í skrokk á húsráðanda
- Lyfjameðferð við Fabry gengið vel
-
Mögnuð upplifun á toppi veraldar
- „Þú ert svo mikill aumingi“
- Tvö umferðaróhöpp á Suðurnesjum
- Steingrímur J. afhendir lykla
- Illugi tekur við lyklunum
- Enn haldið sofandi
- Eftirlit í Kjálkafirði í dag - lokað í nótt
- Kaupmáttur launa aukist um 2,4%
- Guðni Páll kominn að höfuðborgarsvæðinu
- Fer ánægð og sátt frá borði
- „Krefjandi dagar framundan“
- Makríltorfur og John Wayne
- Heimilisofbeldi
- Ríkisstjórn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks
- Íslenskir Everestfarar
- Vilborg Arna og leiðangrar hennar
- Umsókn um aðild að ESB























