40-50 milljarðar í veiðigjöld á 3 árum

Forsætisráðherra segir að veiðigjöld skili 40-50 milljörðum á næstu þremur …
Forsætisráðherra segir að veiðigjöld skili 40-50 milljörðum á næstu þremur árum. mbl.is/Hjörtur

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að fjárfestingaráætlun, sem ráðuneytið kynnti í vor, sé ekki í uppnámi þrátt fyrir breytingar sem hafi verið gerðar á frumvarpi um veiðigjöld.

Forsætisráðherra sendi frá sér fréttatilkynningu í dag vegna umræðu í fjölmiðlum um að fyrirhuguð lög um veiðigjöld muni aðeins gilda í eitt ár og að fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar sé í uppnámi.

„Þvert á móti munu veiðigjöldin verða stigvaxandi á næstu árum verði fyrirliggjandi lagafrumvarp samþykkt eins og samkomulag um þinglok gerir ráð fyrir. Miðað við óbreytta afkomu sjávarútvegsins má því gera ráð fyrir að arður þjóðarinnar af fiskveiðiauðlindinni verði um 1% af landsframleiðslu næstu árin eða 40-50 milljarðar á næstu þremur árum eins og áætlanir stjórnvalda gerðu ráð fyrir.

Með þessari niðurstöðu hafa forsendur fjárlaga, langtímaáætlunar í fjármálum ríkissjóðs og fjárfestingaráætlunar ríkisstjórnarinnar 2013-2015 verið tryggðar hvað varðar tekjur af veiðigjöldum,“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert