Dópaður og braut rúðu

Lögreglan var kölluð út vegna óláta manns í Blönduhlíð í Reykjavík í nótt. Maðurinn, sem var í mjög annarlegu ástandi, var búinn að brjóta rúðu í íbúðarhúsi þegar lögregla kom á vettvang.

Lögregla handtók manninn og fann á honum ætluð fíkniefni. Hann sefur nú fangageymslur og þarf svo að svara fyrir gjörðir sínar í skýrslutöku þegar hann vaknar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert