Viðvörun vegna hvassviðris og úrkomu

Hvassviðri við Dyrhólaey.
Hvassviðri við Dyrhólaey. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Eftir blíðviðri undanfarinna vikna vill Veðurstofan vekja sérstaka athygli á versnandi veðri.

Síðdegis á morgun og annað kvöld er búist við hvassri suðaustan- og austanátt sunnan- og vestantil á landinu með rigningu. Víða verður meðalvindhraði á bilinu 13-20 m/s og hviður geta staðbundið farið um eða yfir 30 m/s. Hvassast verður við SV-ströndina og á vestanverðu hálendinu og þar má búast við 18-23 m/s og hviðum allt að 40 m/s.

Ferðafólki er bent á að tjöld, hjólhýsi og aftanívagnar geta fokið við þessar aðstæður.

Einnig vill Veðurstofan vekja athygli á að stórstreymi er á laugardagskvöld.

Aðfaranótt sunnudags dregur verulega úr vindi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert