Crowe spilar í Hörpunni

Russell Crowe í Norðurljósasal Hörpunnar.
Russell Crowe í Norðurljósasal Hörpunnar. Eggert Jóhannesson

Tónleikar stórleikarans Russells Crowe í Norðurljósasal Hörpunnar hófust nú fyrir stuttu.

Þeir sem komast ekki á tónleikana þurfa þó ekki að örvænta því að leikarinn mun spila ásamt samtarfsfélaga sínum, Alan Thomas Doyle, á að minnsta kosti tvennum tónleikum til viðbótar í kvöld.

Næstu tónleikar Crowe og Doyle fara fram í bakgarðinum hjá skemmtistaðnum Bar 11 klukkan 20:30. en að baki þeim tónleikum standa útvarpsstöðin X-977 og Bar 11. Þar á eftir munu þeir félagarnir spila á gistiheimilinu Kex Hostel klukkan 21:30 í kvöld.

Þá hefur skemmtistaðurinn Gamli Gaukurinn einnig tilkynnt að Crowe og Doyle muni koma þar fram í kvöld.

Annasamt kvöld hjá Crowe

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert