Landsfundur Samstöðu 6. október

Lilja Mósesdóttir ætlar að einbeita sér að þingstörfum og gefur …
Lilja Mósesdóttir ætlar að einbeita sér að þingstörfum og gefur ekki kost á sér til formennsku í Samstöðu. mbl.is/Ómar

Landsfundur Samstöðu, flokks lýðræðis og velferðar, verður haldinn 6. október n.k. Þar verður kosin stjórn og formaður flokksins. Núverandi bráðabirgðastjórn hvetur alla félagsmenn og stuðningsfólk til þess að taka þátt í landsfundi og gefa kost á sér til starfa. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Lilja Mósesdóttir tilkynnti í morgun að hún myndi ekki gefa kost á sér til formanns flokksins á fundinum heldur einbeita sér að störfum sínum á þingi.

Frétt mbl.is: Lilja gefur ekki kost á sér

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert