Sér engan tilgang í að mæta á fundinn

Þráinn Bertelsson kemur ekki á fund VG að Hólum.
Þráinn Bertelsson kemur ekki á fund VG að Hólum. mbl.is/Ómar

„Ég ætla að taka mér frí frá þessum fundi,“ segir Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, en flokksráðsfundur Vinstri grænna hefst í dag á Hólum í Hjaltadal.

Í umfjöllun um fundinn í Morgunblaðinu í dag segist Þráinn ekki alveg sjá hvaða tilgangi fundirnir þjóni og bendir á að honum finnist stjórnmálaumræður og -ályktanir flokksráðsfunda litlu skila.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert