Ekki með leyfi til innheimtustarfsemi

Fjármálaeftirlitið skoðar lögmæti umræddrar innheimtuþjónustu vörslusviptingafélaga.
Fjármálaeftirlitið skoðar lögmæti umræddrar innheimtuþjónustu vörslusviptingafélaga. Ómar Óskarsson

Hvorki Vörslusviptingar-LMS ehf. eða Vörslusvipting ehf., sem varð gjaldþrota, sótti um leyfi til innheimtustarfsemi hjá Fjármálaeftirlitinu (FME). Þetta kemur fram í ákvörðun Persónuverndar en kvartað var yfir starfsemi fyrirtækjanna. Einnig segir að FME sé með fyrirtækin í skoðun.

Persónuvernd barst kvörtun 28. júní 2011 yfir vinnslu persónuupplýsinga um sig hjá vörslusviptingafyrirtæki. Málið lýtur að því hvort Lýsingu hf. hafi verið heimilt að afhenda persónuupplýsingar um hann til Vörslusviptinga. Kvartandi sagði að sér hefði orðið ljóst að upplýsingunum hefði verið miðlað þangað þegar haft hefði verið samband við hann símleiðis vegna innheimtu á skuld hans við Lýsingu hf.

Leitað var svara hjá Lýsingu sem sagði að 19. desember 2006 hefði verið gerður samningur við Vörslusviptingu. Þegar fyrirtækið varð gjaldþrota hafi Lýsing svo samið við Vörslusviptingar-LMS ehf. sem hefði tekið við rekstrinum. Sá samningur hefði verið sérstaklega staðfestur hinn 12. ágúst 2011.

Fékk upplýsingar til innheimtu

Þá fékkst staðfest að upphaflega hefði Vörslusvipting fengið persónuupplýsingar um kvartanda frá Lýsingu hf. Bæði Vörslusvipting og Vörslusviptingar-LMS hefðu unnið með þær upplýsingar fyrir Lýsingu í því skyni að gera innheimtu hjá umræddum manni og svipta hann vörslum lausafjár.

Í ljósi þessa óskaði Persónuvernd svara FME um lögmæti innheimtustarfsemi fyrirtækjanna í ljósi innheimtulaga. Í svarbréfi Fjármálaeftirlitsins frá 20. mars 2012 var greint frá því að hvorki Vörslusvipting né Vörslusviptingar-LMS hefðu fengið leyfi til innheimtustarfsemi.

Persónuvernd sendi Fjármálaeftirlitinu aftur bréf hinn 12. apríl 2012 og óskaði svara um hvernig eftirlitið hefði í hyggju að bregðast við. Í svari til Persónuverndar 17. apríl sl. sagði FME m.a. að ef fyrirtæki stundaði innheimtu sem félli undir innheimtulög bæri því að sækja um innheimtuleyfi til FME. „Niðurstaða skoðunar þess hefði hins vegar ekki verið sú að tilefni væri til að grípa til aðgerða, enda væru engar vísbendingar um Vörslusvipting eða Vörslusviptingar-LMS stunduðu starfsleyfisskylda starfsemi sem heyrði undir verksvið FME.“

Skoða starfsemina eftir afhendingu gagna

FME spurði á móti hvort Persónuvernd hefði gögn um slíkt undir höndum. Persónuvernd sendi þá bréf til Fjármálaeftirlitsins hinn 18. apríl 2012 og með því þau gögn sem tilheyrðu kvörtuninni. Í svarbréfi Fjármálaeftirlitsins 22. maí 2012 segir m.a. að á grundvelli þeirra gagna hafi það ákveðið að taka til skoðunar ákveðna þætti í starfsemi vörslusviptingafyrirtækjanna.

Persónuvernd ákvað því að taka mál þetta til efnismeðferðar þegar niðurstaða FME um lögmæti umræddrar innheimtuþjónustu lægi fyrir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert