Kringlan safnar fyrir hjartveik börn

Format – Akron smíðaði hjartað og gaf vinnu sína verkið. …
Format – Akron smíðaði hjartað og gaf vinnu sína verkið. Helga Valdís Árnadóttir, grafískur hönnuður hannaði hjartað fyrir Rekstrarfélag Kringlunnar.

„Láttu hjartað ráða“ er fjáröflun sem kaupmenn og starfsfólk í Kringlunni ætla að sýna frumkvæði í en Rekstrarfélag Kringlunnar stendur fyrir söfnuninni til stuðnings Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna.

Útbúinn hefur verið hjartalaga risasparibaukur úr plexígleri þar sem fólki mun gefast kostur á að styðja þetta góða málefni. Í tilefni þess að Kringlan er 25 ára langar okkur að gefa einskonar afmælisgjöf frá Kringlunni og viðskiptavinum til Neistans á þessum tímamótum.


Söfnunarhjartað verður staðsett í hjarta Kringlunnar og hófst í dag og stendur fram í september. Kaupmenn í Kringlunni, fyrirtæki og starfsfólk setja þessa söfnun af stað með því að mynda röð að hjartanu til að setja í það 500 kr. seðil hver og einn. Með þessu fordæmi starfsfólks og rekstraraðila í Kringlunni er vonast til að gestir Kringlunnar taki virkan þátt í átakinu og um leið þeim gjörningi að láta 500 kr. seðlana lita hjartað rautt en viðskiptavinir verða hvattir með skiltum við hjartað til að láta 500 kr. seðla í söfnunina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert