Fyrsta ferð Herjólfs fellur niður

Herjólfur í Landeyjarhöfn
Herjólfur í Landeyjarhöfn Ómar Óskarsson

Ekki verður siglt frá Landeyjahöfn vegna mikillar ölduhæðar og fyrsta ferð Herjólfs fellur því niður. Athuga á með aðra ferð klukkan níu.

Klukkan sjö í morgun var ölduhæð 3,1-3,6 metrar.

Samkvæmt spánni á ölduhæðin að ganga niður um hádegið en rísa aftur þegar líða fer á daginn. 

Farþegar eru beðnir að fylgjast vel með á heimasíðu Herjólfs eða hringja í síma 481-2800.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert