Öryggissvæðið stækkað

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur í morgun unnið að því að setja öryggisgirðingar upp við Alþingishúsið en öryggissvæðið hefur verið stækkað til muna við þingsetninguna í ár.

Er það gert í öryggisskyni meðal annars vegna eggjakasts mótmælenda undanfarin ár. Með þessu komast áhorfendur ekki jafn nálægt þingmönnum og við fyrri þingsetningar en lokað verður fyrir Kirkjustræti að styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert