Hafa fundið þúsund kindur á lífi

Björgunarsveitarmenn eru með mikinn tækjabúnað með sér.
Björgunarsveitarmenn eru með mikinn tækjabúnað með sér. Ljósmynd/641.is

Búið er að bjarga hátt í 1000 kindum af Flateyjardal og hefur nánast allt féð fundist á lífi. Minni snjór er á Flateyjardal heldur en menn bjuggust við og er autt nyrst á dalnum og talsvert inn í land. Leitarmenn eru því bjartsýnir á að margt fé muni finnast á lífi og tjónið verði því minna en menn óttuðust í fyrstu.

Þetta kemur fram í frétt á vefnum 641.is. 60-70 björgunarsveitamenn gistu í Stórutjarnaskóla í nótt en þeir taka þátt í fjárleitum á Flateyjardal, Fnjóskadal og í Vaðlaheiði. Þeir fengu sér morgunmat kl. 7:00 í morgun áður en haldið var aftur af stað.

Fjárleitir stóðu yfir á Flateyjardal, Fnjóskadal og í Vaðlaheiði í fyrradag og í gær. Mikill fjöldi björgunarsveitarmanna af höfuðborgarsvæðinu kom á svæðið í gær til að aðstoða bændur og heimafólk við leitina.

Björgunarsveitarmenn fengu sér að borða í morgun áður en lagt …
Björgunarsveitarmenn fengu sér að borða í morgun áður en lagt var af stað. Ljósmynd/641.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert