Utanríkisráðherra Kýpur í heimsókn

Utanríkisáðherra Kýpur, Erato Kozakou-Marcoullis og Össur Skarphéðinssonar
Utanríkisáðherra Kýpur, Erato Kozakou-Marcoullis og Össur Skarphéðinssonar

Utanríkisáðherra Kýpur, Erato Kozakou-Marcoullis, heimsækir Ísland í dag en Kýpur fer nú með formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins. Með heimsókninni endurgeldur ráðherrann opinbera heimsókn Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra til Kýpur í janúar sl.        

Kozakou-Marcoullis átti í morgun fund með utanríkisráðherra, þar sem aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið voru helsta efnið. Rætt var um verkefnin framundan í aðildarviðræðunum og ítrekaði ráðherrann stuðning Kýpverja við aðildarumsókn Íslendinga. Ennfremur ræddu þau makríldeiluna og utanríkisráðherra kynnti stöðuna í Icesave-málinu sem nú er fyrir EFTA-dómstólnum.

Síðar í dag mun utanríkisráðherra Kýpur hitta Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingrím J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, og skoða Hellisheiðarvirkjun, segir í tilkynningu sem ráðuneytið hefur sent frá sér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert