Nauðsynlegt að hefja gjaldtöku

Tugþúsundir manna skoða Gullfoss ár hvert.
Tugþúsundir manna skoða Gullfoss ár hvert. Morgunblaðið/RAX

Björgólfur Jóhansson forstjóri Icelandair group segir að nú sé svo komið að nauðsynlegt sé að hefja gjaldtöku að náttúruperlum á Íslandi. Öðrum kosti sé mikil hætta á því að umhverfi nærri náttúruperlunum muni láta á sjá. Fyrir vikið verði upplifunin af því að koma á staðina ekki eins tilkomumikil og hún gæti ellegar orðið.

„Ég held að það sé lykillinn að framtíðinni í ferðamennsku á Íslandi. Við  þurfum að passa okkur á umgengni og viðhaldi á þessum stöðum. Við erum að leita að tekjum til að uppfylla þær skyldur og ég held að þetta sér rétta leiðin ef það á að vera hægt að viðhalda þjónustu,“ segir Björgólfur. 

Hann segir að það sé nauðsynlegt að innheimta gjald fyrir þjónustu með þessum hætti en ekki seilast í vasa allra skattborgara með öðrum leiðum.

„Það er mun skynsamlegra að taka gjald frá þeim sem eru á staðnum heldur en að gera það óbeint með gistináttagjaldi eða öðru,“ segir Björgólfur.
 
„Það skiptir ekki máli hvort um er að ræða staði í almannaeigu eða einkaeigu. Við eigum einfaldlega að taka þetta skref núna. Það er ekki á mörgum stöðum í heiminum sem þú getur gengið að án þess að greiða fyrir. Slíkt skref yrði ferðamannaiðnaðinum til heilla. Ég er sannfærður um það,“ segir Björgólfur.  

Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandic Group
Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandic Group mbl.is/Kristinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert