Verður minnst fyrir norðanáhlaupið

Frá Þeistareykjum eftir óveðrið
Frá Þeistareykjum eftir óveðrið mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Septembermánaðar verður að þessu sinni einkum minnst fyrir óvenjulegt hríðarveður sem gerði um landið norðanvert dagana 9. til 11. september Mikið fannfergi og ísing fylgdi veðrinu og olli hvort tveggja miklu tjóni, ísing felldi raflínur og fé fennti þúsundum saman. Enn er ekki ljóst hversu margt af fénu drapst, samkvæmt frétt á vef Veðurstofu Íslands.

Hiti mánaðarins í heild var nærri meðallagi, ýmist lítillega undir því eða rétt yfir. Hlýjast að tiltölu var á Austfjörðum en kaldast inn til landsins um það vestanvert. Óvenjuúrkomusamt var víða á landinu. Meðalhiti í Reykjavík mældist 7,3 stig, 0,1 stigi undir meðallagi september 1961 til 1990. Þetta er að tiltölu kaldasti mánuður þessa árs í Reykjavík.

Meðalhitinn á Akureyri var 6,0 stig og er það 0,3 stigum undir meðallagi. Á Höfn í Hornafirði var meðalhitinn 7,1 stig, 0,6 stigum undir meðallagi.

Hlýjast á Garðskagavita

Meðalhiti mánaðarins var hæstur á Garðskagavita, 8,6 stig, og í Surtsey var hann 8,5. Mánaðarmeðalhitinn var lægstur í Sandbúðum og á Gagnheiði, -0,3 stig. Í byggð var meðalhitinn lægstur í Svartárkoti, 2,8 stig.

Hæsti hiti mánaðarins mældist á Hallormsstað og Kollaleiru þann 1., 19,6 stig. Á mannaðri stöð mældist hiti hæstur í Miðfjarðarnesi þann 1., 19,5 stig.

Lægsti hiti í mánuðinum mældist á Brúarjökli þann 20., -8,4 stig. Lægstur hiti í byggð mældist í Árnesi þann 12., -7,7 stig.

Meira er þreföld meðalúrkoma á Akureyri

Fádæma úrkomusamt var víða um landið norðanvert og úrkoma var vel ofan meðallags á flestum stöðvum sem meðaltöl hafa verið reiknuð fyrir.

Í Reykjavík mældist úrkoman 101,7 mm og er það 53% umfram meðallag. Úrkoma hefur oft mælst meiri en þetta í september, síðast 2008. Á Akureyri mældist úrkoman 140,6 mm og er það meir en þreföld meðalúrkoma. Meiri úrkoma hefur aðeins mælst einu sinni á Akureyri í september. Það var 1946 þegar hún mældist 166 mm, þar af meir en helmingur á einum degi.

Þetta er úrkomumesti september á nokkrum stöðvum í Skagafirði og í Eyjafirði, en mælt hefur verið mislengi.

Sólskinsstundir mældust 142,6 í Reykjavík og er það 18 stundum umfram meðallag. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 84,7 og er það í meðallagi.

Frá fjárleit á Þeistareykjum í september
Frá fjárleit á Þeistareykjum í september Björgunarsveitin Ársól Reyðarfirði.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert