Vísinda- og tækniráð skipað

Stjórnarráðshúsið.
Stjórnarráðshúsið. mbl.is/Hjörtur

Forsætisráðherra hefur skipað vísinda- og tækniráð til næstu þriggja ára. Vísinda- og tækniráð starfar skv. lögum nr. 2/2003 og hefur m.a. það hlutverk að marka stefnu stjórnvalda á sviði vísinda- og tæknimála til þriggja ára í senn.

Í vísinda- og tækniráði 2012-2015 eiga sæti:

  • ·         Tatjana Latinovic, sérfræðingur hjá Össur hf., án tilnefningar, til vara Agnar Helgason, Íslenskri erfðagreiningu.
  • ·         Anna Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, án tilnefningar, til vara Eiríkur Steingrímsson, prófessor við Háskóla Íslands.
  • ·         Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar og prófessor við Háskóla Íslands, tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðherra, til vara Magnús Karl Magnússon læknir, prófessor við Háskóla Íslands.
  • ·         Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, tilnefndur af atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, til vara Edward Huijbens, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála.
  • ·         Harpa Grímsdóttir, útibússtjóri Snjóflóðaseturs Veðurstofu Íslands á Ísafirði, tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, til vara Berglind Hallgrímsdóttir, forstöðumaður IMPRU á Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
  • ·         Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, lektor við Hólaskóla, tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, til vara Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða.
  • ·         Kristín Svavarsdóttir, vistfræðingur Landgræðslu ríkisins, tilnefnd af umhverfis- og auðlindaráðherra, til vara Ingvar Kristinsson, þróunarstjóri Veðurstofu Íslands.
  • ·         Magnús Gottfreðsson, læknir á Landspítala og prófessor við Háskóla Íslands, tilnefndur af velferðarráðherra, til vara Þórunn Rafnar, Íslenskri erfðagreiningu.
  • ·         Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins, til vara Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands.
  • ·         Jón Atli Benediktsson, prófessor og aðstoðarrektor Háskóla Íslands, tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins, til vara Róbert H.N. Haraldsson, prófessor við Háskóla Íslands.
  • ·         Emma Eyþórsdóttir, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands, tilnefnd af samstarfsnefnd háskólastigsins, til vara Jóhann Örlygsson, prófessor við Háskólann á Akureyri.
  • ·         Steinunn Gestsdóttir, dósent við Háskóla Íslands, tilnefnd af samstarfsnefnd háskólastigsins, til vara Inga Þórsdóttir, prófessor og forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.
  • ·         Kormákur Hlini Hermannsson, Nox Medical, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands, til vara Ingunn S. Þorsteinsdóttir, hagfræðingur ASÍ.
  • ·         Róbert Farestveit, hagfræðingur ASÍ, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands, til vara Eyrún Valsdóttir, deildarstjóri fræðsludeildar ASÍ
  • ·         Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins, til vara Bryndís Skúladóttir, forstöðumaður umhverfisdeildar Samtaka iðnaðarins. 
  • ·         Guðbergur Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fiskeldisstöðva, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins, til vara Pétur Reimarsson, forstöðumaður Samtaka atvinnulífsins.

 Auk framangreindra eiga forsætisráðherra, sem jafnframt er formaður ráðsins, fjármála- og efnahagsráðherra, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, velferðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra sæti í ráðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert