16 ára stúlka átti fíkniefnin

Kannabis
Kannabis AFP

Lögreglumenn á Selfossi höfðu afskipti af ökumanni á Selfossi um helgina vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Í bifreiðinni fannst lítilræði af fíkniefnum sem farþegi, 16 ára stúlka, gekkst við að eiga. Aðfaranótt laugardags fóru lögreglumenn á skemmtistað í Þorlákshöfn til að kanna aldur gesta og leyfi. Þar voru öll leyfi fyrir hendi og gestir komnir með aldur til þess að vera á staðnum, samkvæmt dagbók lögreglu.

Hjól fór undan vörubifreið sem var á austurleið á Suðurlandsvegi við Kotströnd í Ölfusi síðastliðinn miðvikudag. Hjólið lenti á bifreið sem var ekið í gagnstæða átt. Ökumaður vörubifreiðarinnar varð ekki var við þetta fyrr en hann var kominn að Ingólfsfjalli er annað hjól fór undan. Talsvert tjón varð á ökutækinu, samkvæmt dagbók lögreglu.

Þrettán ökumenn voru kærðir fyrir umferðarlagabrot í síðustu viku. Þar af voru sex kærðir fyrir hraðakstur, tveir fyrir ölvunarakstur og einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.

Visakorti var stolið af gesti veitingastaðar á Selfossi og tókst þjófnum að nýta sér það í fjögur skipti. Kortaþjófurinn er ófundinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert