„Verðbólgan versti óvinur sjóðanna“

Gunnar Baldvinsson skilur að óánægja sé með verðtryggð lán.
Gunnar Baldvinsson skilur að óánægja sé með verðtryggð lán. mbl.is/Árni Sæberg

„Lífeyrissjóðirnir eiga erfitt með að veita óverðtryggð lán nema með breytilegum vöxtum. Það er bundið í lög að lífeyrissjóðir skuli greiða verðtryggðan lífeyri. Þar sem verðbólga hefur verið viðvarandi í íslensku samfélagi er óhjákvæmilegt annað en að lán með óverðtryggðum vöxtum beri breytilega vexti.“

Þetta segir Gunnar Baldvinsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða í Morgunblaðinu í dag. Tilefnið er umræða um verðtryggð lán, kosti þeirra og galla.

„Ég er ekki viss um að það breyti miklu fyrir lántakendur að velja óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum í staðinn fyrir verðtryggð lán. Sagan segir okkur að raunvextir óverðtryggðra lána hafa verið svipaðir og af verðtryggðum lánum þegar litið er yfir lengri tíma.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert