Halli upp á fimmtíu milljónir

mbl.is/Sigurður Bogi

Ef ekki koma frekari fjárveitingar til lögreglunnar og sýslumannsins á Selfossi þarf að segja upp fjórum lögreglumönnum og einnig starfsfólki á sýsluskrifstofu. Fastar stöður lögreglumanna á Selfossi eru 24 en voru 28 fyrir fáum árum.

Í úttekt ríkislögreglustjóra frá árinu 2006 kemur fram að embættið á Selfossi þurfi að lágmarki 34-36 lögreglumenn til að sinna sínu umdæmi. Það er mjög stórt og inniheldur auk nokkurra þéttbýlisstaða þúsundir sumarhúsa og fjölsótta ferðamannastaði.

Í fréttaskýringu um þetta mál í Morgunblaðinu í dag segir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi, að með 20-24 mönnum sé ljóst að lögreglan geti aðeins sinnt viðbragðslöggæslu. Hafa forvarna- og eftirlitsverkefni orðið að sitja á hakanum.önnum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert