Jón Gnarr: Hommafælnir eru fífl

Jón Gnarr tekur virkan þátt í Hinsegin dögum.
Jón Gnarr tekur virkan þátt í Hinsegin dögum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

 Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, segir þá sem haldna eru hommafælni ekki hrædda. Þeir eru einfaldlega fífl. Jón skrifaði þetta á Facebook-síðu sína á ensku í dag: „Homophobia is not a phobia. They are not scared. They are just a bunch of assholes.“

Hann tengir grein af vef BBC við ummæli sín þar sem sagði frá miklum mótmælum í Frakklandi gegn hjónabandi samkynhneigðra.

Þessi ummæli borgarstjórans hafa vakið athygli út fyrir landsteinana og voru m.a. í dag birt á vefnum Pink News sem er einn stærsti vefur Evrópu þar sem fjallað er um málefni samkynhneigðra.

Í frétt Pink News kemur fram að Jón sé þekktur fyrir baráttu sína fyrir mannréttindum.

Færsla Jóns hefur auk þess fengið gríðarleg viðbrögð á Facebook-síðu hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert