Óttast heyleysi á NA-landi

Bændur á Norðausturlandi byrjuðu snemma að gefa hey í haust.
Bændur á Norðausturlandi byrjuðu snemma að gefa hey í haust. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Ari Teitsson, ráðunautur á Hrísum í Suður-Þingeyjarsýslu, segir allt benda til að heyskortur verði á Norðausturlandi í vetur. Bændur hafi þurft að taka búfé óvenjusnemma á gjöf og heyfengur sé undir meðallagi vegna grasleysis í sumar.

„Ég held að það sé ástæða til að hafa áhyggjur af heyfeng í vetur,“ segir Ari. Hann segir að menn séu ekki komnir með heildarmynd af stöðu mála.

Samkvæmt lögum um búfjáreftirlit er safnað upplýsingum á haustin um fjölda búfjár og fóðurforða hjá bændum. Þeim upplýsingum þarf að skila fyrir miðjan desember. Ari segist reikna með að unnið verði  tiltölulega hratt úr þessum upplýsingum og um áramót ætti að liggja fyrir hvernig staðan er.

Ari segir að jafnan eigi einhverjir bændur í sýslunni umframbirgðir af heyi, en þeim hafi farið fækkandi á síðustu árum vegna þess hvað grasspretta hefur verið léleg.

„Menn eiga náttúrlega þann kost að auka kjarnfóðurgjöf til að stilla heygjöf í hóf. Það er hins vegar dýr lausn því að kjarnfóðrið er dýrt,“ segir Ari.

Svo mikið hefur snjóað að haglaust er fyrir hross víðast hvar í Þingeyjarsýslum. Ari segir að þó að bændur í Þingeyjarsýslum séu ekki með jafnmörg hross og t.d. í Skagafirði þá geri þetta stöðu sumra bænda erfiðari því allt bendi til að gefa  þurfi hrossum mun meira hey í vetur en undanfarin ár. Hann segir jarðlítið fyrir hross kringum sig og það gerist nánast aldrei á þessum tíma árs.

Takmörk eru á heyflutningum hér á landi vegna sauðfjárveikivarna. Það er því ekki þannig að bændur í Þingeyjarsýslum geti keypt hey hvar sem er. Ari segir að reynt verði að miðla heyi á milli bæja innan héraðs, en síðan hafi verið heimilað að flytja hey milli sýslna ef sannað þykir að sauðfé hafi ekki gengið á túnum þaðan sem heyið kemur.

„Versta vetrarbyrjun sem ég hef lifað“

Ari man langt aftur og hann segir þennan vetur byrja illa. „Þetta er einhver versta vetrarbyrjun sem ég hef lifað. Ef talið er með óveðrið í septemberbyrjun þá er þetta langversta vetrarbyrjun sem ég hef lifað,“ sagði Ari.

„Það hafa komið vetur þar sem hefur aldrei gert þannig stórhríð að það fenni inn í útihús hjá mér. Núna er nóvember að verða búinn, og hann hefur stundum ekki verið talinn til vetrarmánaða, en það hafa komið fjórar stórhríðir þannig að snjór hefur komist inn í hús hjá mér. Þetta er því ekkert venjulegur vetur.“

Ari Teitsson.
Ari Teitsson.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert