Um 72% telja stjórnkerfi fiskveiða á Íslandi betra en í öðrum löndum

Af vef LÍÚ

Í skoðanakönnun sem MMR gerði fyrir  Landssamband íslenskra útvegsmanna kemur í ljós að mikill meirihluti telur stjórnkerfi fiskveiða vera betra hér á landi en í öðrum löndum. 71,7% þeirra sem tóku afstöðu telja að stjórnkerfi fiskveiða sé heldur eða mun betra en í öðrum löndum. 11,2% telja kerfið alveg eins en 17,1% telja stjórnkerfi fiskveiða hér á landi verra en í öðrum löndum.

Þetta kemur fram í frétt á vef LÍÚ.

LÍÚ lét einnig kanna hug fólks til mikilvægis íslensks sjávarútvegs. Niðurstöðurnar voru afgerandi en 96,9% telja íslenskan sjávarútveg annaðhvort mjög eða einstaklega mikilvægan fyrir Ísland.

Könnunin var gerð dagana 9.-13. nóvember síðastliðinn meðal Íslendinga á aldrinum 18-67 ára og var svarfjöldinn 879.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert