Heilög Lúsía heiðruð

Í kvöld fór fram Lúsíuhátíð í Seltjarnarneskirkju. Sænska félagið á Íslandi stendur hátíðinni og í kvöld voru tónleikar þar sem kór og hljómsveit sungu og spiluðu lög. 

„Lúsíuhátið náði fótfestu á Norðurlöndunum, fyrst í Värmland í Svíþjóð á 18. öld, en breiddist síðan út um alla Svíþjóð og víðar á Norðurlöndum. Heilög Lúsía á hins vegar uppruna sinn í borginni Syracusa á Sikiley, Sænska félagið á Íslandi hefur frá stofnun 1954 hadið Lúsíuhátið innan sinna raða, en frá 1991 hafa verið haldnir opinberir tónleikar í tilefni hátíðarinnar þar sem Lúsía, prýdd kórónu með kertum, fer fremst í flokki kórs hvítklæddra meyja, jólasveina og piparkökukarla sem bera birtu í skammdegið með söng hefðbundinna Lúsíu -og jólalaga,“ segir í fréttatilkynningu. 

Stjórnandi kórs og hljómsveitar er Maria Cederborg og hefur hún verið það frá árinu 1991. Kallar hún saman hóp barna og fullorðinna á hverju hausti til að undirbúa Lúsíuhátiðina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert