Stjórnarandstaðan veikir framkvæmd barnalaga

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. mbl.is/Styrmir Kári

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að stjórnarandstaðan hafi veikt framkvæmd nýrra barnalaga með því að fella tillögu sína á Alþingi í gær, um að gildistöku laganna yrði frestað fram á sumar svo að nægilegt fjárframlag væri tryggt og standa mætti að undirbúningi með sóma.

Ögmundur skrifar á bloggsíðu sína, að Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, hafi farið fremstur í flokki stjórnarandstöðu sem felli frestunarfrumvarpið „án þess að víkja í nokkru að því hvernig ætti að standa að málum nú 1. janúar þegar lögin taka gildi, án nægilegs fjárframlags og án nægilegs undirbúnings. Guðmundi Steingrímssyni er að sjálfsögðu frjálst að hafna þeim rökum sem ég hef sett fram en rök eru það engu að síður að vilja tryggja  mikilvæga framkvæmd í þágu barna,“ segir Ögmundur.

„Ég hef látið þau orð falla að ekki finnist mér neitt sérstaklega bjart yfir vinnubrögðum þeirra sem felldu frestunartillögu mína þótt sá sem stóð þar í farabroddi kenni sig við bjarta framtíð. Ekki lofar þetta sérstaklega góðu um vinnubrögð hlutaðeigandi stjórnmálahreyfingar í framtíðinni. En að stjórnarandstaðan öll hafi ákveðið að hoppa á vagninn með Guðmundi er mér óskiljanlegt og ég kalla eftir skýringum frá þeim, sem þurfa að reynast haldbærar í umræðum við öll sýslumannsembætti landsins, sem nú hafa tvo daga, 27. og 28. desember, til að undirbúa gildistöku barnalaganna,“ skrifar Ögmundur. 

„Öllum er umhugað að standa vel og fagmannlega að verki en það er nokkuð sem ekki er hrist fram úr erminni á fáeinum vikum eða mánuðum, hvað þá dögum! Grundvallarforsenda er að vita hverjar fjárheimildirnar eru. Eðli máls samkvæmt þurftu niðurstöður fjárlaga fyrir komandi fjárlagaár því að liggja fyrir,  en það gerðist í vikunni,“segir hann ennfremur.

Hann bendir á, að þann 1. janúar skuli sýslumannsembættin vera tilbúin til að taka á forsjár- og umgengnisdeilum með gerbreyttum hætti, þ.m.t. með sérfræðiþekkingu innan sinna veggja, sem sé þar ekki eins og sakir standa. Á þessu þurfi löggjafinn að standa skil, gagnvart framkvæmdaaðilunum, foreldrum og síðast en ekki síst börnum, sem þessi löggjöf á að snúast um.

„Í þessu samhengi er lágmarkskrafa á hendur Alþingi að það tryggi samræmi í fjárveitingum annars vegar og hins vegar skynsamlegum tímaramma og efnislegum möguleikum til að framkvæma þau lög sem samþykkt eru á Alþingi,“ segir Ögmundur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert