Stal rifflinum úr sumarbústað

Matthías Máni er nú aftur kominn inn á Litla-Hraun eftir …
Matthías Máni er nú aftur kominn inn á Litla-Hraun eftir að hafa verið í viku á flótta. mbl.is/Brynjar Gauti

Matthías Máni Erlingsson, strokufanginn sem gaf sig loks fram í morgun, virðist hafa stolið rifflinum sem hann var vopnaður í sumarbústað skammt frá Árnesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi.

Matthías Máni  var handtekinn á sveitabænum Ásólfsstöðum í Þjórsárdal í morgun eftir að hann knúði þar dyra og óskaði þess að fá að gefa sig fram við lögreglu.  Hann var í kjölfarið fluttur í fangelsið að Litla–Hrauni.   

Matthías var vopnaður riffli með hljóðdeyfi sem hann virðist hafa stolið úr sumarbústað skammt frá Árnesi en ummerki eru um að hann hafi dvalið þar a.m.k. um stund en þó ekki allan þann tíma sem hann var laus, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi. Fleira af þeim munum sem hann var með meðferðis eru úr þeim bústað en eftir er að finna eigendur annarra muna. Samkvæmt heimildum mbl.is er riffillinn 22-kalíbera og er það algengasta hlaupvídd á rifflum á Íslandi. Hljóðdeyfirinn er hins vegar ólöglegur og mun vera sjaldgæfur á Íslandi.

Rannsókn á flótta hans og refsimáls er lítur að meintum hótunum hans í garð fólks sem honum tengist heldur áfram en ekki er að vænta frekari frétta af því fyrr en eftir áramót. 

Lögreglan á Selfossi og lögregla höfuðborgarsvæðisins þakka þeim sem hönd lögðu á plóginn við leitina undanfarna daga, segir í tilkynningu.

Matthías Máni Erlingsson.
Matthías Máni Erlingsson.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert