Styður Nelson Mandela-torg í Reykjavík

Nelson Mandela, fyrrverandi forseti S-Afríku.
Nelson Mandela, fyrrverandi forseti S-Afríku. MIKE HUTCHINGS

Skipulagsstjóri Reykjavíkur leggur til við skipulagsráð að það taki jákvætt í tillögu Arkitektur- og designhögskolen í Ósló um að fá reit undir Nelson Mandela-torg í Reykjavík. Málið verður tekið fyrir í skipulagsráði í vikunni.

Arkitektaskólinn sendi bréf til borgarinnar 5. október þar sem óskað var eftir að borgin úthlutaði reit í Reykjavík fyrir lokaverkefni meistaraprófsnema í alþjóðadeild skólans. Í bréfinu er Vitatorg nefnt sem hugsanlegur staður, en það er á lóðinni Lindargötu 64-66 ofan á bílageymslu íbúðar og þjónustumiðstöðvar aldraðra við Lindargötu.

Í bréfi skipulagsstjóra er lagt til að tekið verði jákvætt í erindi skólans. Nefnt er að þrjú torg komi helst til greina, Vitatorg, Óðinstorg, sem er milli Týsgötu, Óðinsgötu og
Spítalastígs, og Káratorg, sem er lítið torg við norðurenda Kárastígs. Lagt er til að skólinn fái til umráða eitt af þessum þremur torgum fyrir verkefni sitt.

„Skólinn þarf að leggja tillögur fyrir ráð Reykjavíkurborgar í samráði við Umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar. Farið yrði með tillöguna eins og önnur skipulagsmál, þar sem ráð borgarinnar geta haft áhrif á málið, samþykkt tillöguna, hafnað henni eða komið með breytingartillögur. Einnig þarf að ákveða hvort torgið verði til skamms tíma eða til frambúðar. Koma skal fram hvers konar starfsemi þar er áætluð, hvort gert verði ráð fyrir tónlistarflutningi og hvort sú starfsemi sé í sátt við umhverfið,“ segir í umsögn skipulagsstjóra.

Í upphaflegu bréfi frá Arkitektur- og designhögskolen í Ósló segir að stefnt sé að því að tillaga um torgið verði tilbúin á árinu 2013. Steinþór Helgi Arnsteinsson, sem hefur haft milligöngu um þetta mál fyrir hönd skólans, segir í samtali við mbl.is, að afgreiðsla á þessu erindi hafi dregist hjá borginni og því sé útilokað að tillagan verði tilbúin á þessu ári.

Arkitektur- og designhögskolen í Oslo telur koma til greina að …
Arkitektur- og designhögskolen í Oslo telur koma til greina að breyta Vitatorgi í Nelson Mandela-torg. mbl.is/Heiðar Kristjánsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert